Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 63

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 63
Umfangsmikil löndunarþjónusta Samskipa Landa 40 þúsund tonnum af afla Óshar Gíslason Samskip reka umfangsmikla löndun- arþjónustu fyrir togara og önnur fiski- skip á athafnasvæði fyrirtækisins við Holta- og Vogabakka. Á síðasta ári tóku Samskip á móti 40 þúsund tonnum af fiski og eru að byrja að byggja nýja frystigeymslu við hlið ísheima. Pað er ljóst að fyrirtækið leggur mikla áherslu á að veita góða og örugga þjónustu á þessu sviði sem öðrunt. „Við rekum löndunarþjónustu fyrir logara og erurn með samstarfssamning við Löndun sem er verktaki hjá okkur þegar losað er. Samherji er stærsti við- skiptavinur okkar, en auk þess má nefna Ögurvík, Stálskip og Gjögur auk ýmissa annarra, þar á meðal eru erlend skip,“ sagði Óskar Gíslason sölufulltrúi Sam- skipa í spjalli við Víkinginn, en hann hefur löndunarþjónustuna á sinni könnu. „Við sköffum gáma eða geymslur lil að korna aflanum fyrir og síðan í út- flutning með skipunum okkar. Þessi urnsvif eru nokkuð vertíðarbundin, út- hafskarfanum er landað að mestu í maí til júlí og þar er um gífurlegt magn að ræða á skömmum títna. Síðan er hefð- bundinn afli árið urn kring, svo sem þorskur og grálúða. Svo hafa bæst við uppsjávarfiskiskip sem frysta síld og loðnu, en allur sá floti hefur verið í við- skiptum við okkur. Hér um að ræða nrjög afkastamikil skip sem ryðja rniklu magni í land á skömmum tíma, enda um að ræða skip sem frysta hundrað tonn á sólarhring. Óskar sagði að mjög strangar kröfur væru gerðar urn nteðhöndlun aflans og þær hafi stöðugt verið að aukast. Mikil breyting hafi orðið á því sviði undanfar- in ár. „Frystigeymsl- urnar verða til dæmis að vera vottaðar og allir gántar sérstaklega þrifnir. Þá má ekki lengur landa í hvaða veðri sem er. Það er ekki landað núna í ausandi rigningu og roki. Þess vegna höfum við og fleiri komið upp löndunarskýlum á bryggjurnar þar sem hægt er að hífa upp úr skipi og sortera undir þaki,“ sagði Óskar. Samskip hefur annast þessa löndun- arþjónustu í 10 ár og hún hefur alltaf verið að aukast. Athafnasvæði Samskipa er afgirt og vaktað allan sólarhringinn. Að sögn Óskars eru jafnt útlendingar sem íslendingar farnir að leggja mikla á- herslu á að fá að vera með skipin innan girðingar meðan þau standa við til að tryggja að ekki komi til neinna óþæg- inda frá óviðkomandi aðilum. „Aðstaðan til að annast löndunar- þjónustuna er rnjög góð. Við erum með 200 rnetra viðlegukant á Vogabakkanum og 130 rnetra viðlegu við Holtabakka inn á okkar afgirta svæði. Við erum að fá 150 metra framlengingu á Vogabakka sem verið er að taka í notkun núna en er hún aðallega ætluð fyrir áætlunarkip- inn en til afnota fyrir togarar þegar á- ætlunarskipin eru ekki inn. Því má segja að við höfum 350 metra viðlegu við Vogabakka. Það er ntjög gott fyrir skipin að liggja hérna, hvorki súgur eða annað og hér hreyfir aldrei skip. Þá erum við með frystigeymslu á bryggju- kantinum, ísheima, og erum byrjaðir að undirbúa byggingu á nýrri geymslu við hliðina þar sem verður hægt að koma inn og út miklu magni á sköinm- um tíma,“ sagði Óskar Gíslason hjá Samskip. CX OH FILTCR SYSTIMS, SHIP WINOOWS, AND MITAl CAST1NGS ÚTGERÐARMENN & VÉLSTJÓRAR Um leið og við þökkum ykkur góðar viðtökur viljum við vekja athygli á eftirfarandi: Á sjávarútvegssýningunni i bás H 40 munu Framtak og C.C.Jensen kynna ódýrar og einfaldar aðferðir við að fjarlægja vatn og óhreinindi úr brennsluoliu ásamt þvl að kynna aðrar framleiðsluvörur Þær henta til hreinsunar á flest öllum olíukerfum. ÍFRAMTAK " VÉLA- OC SKIPAhjÓNUSTA Sími: S65 2556 • Fax: 555 6035 Verið velkomin til okkar i bás H-40 Sýningarkerfi á staðnum Sjómannablaðið Víkingur - 63

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.