Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Side 69
Fiskmarkaður íslands í Ólafs\ík
Með 51% hlut af heildarmarkaðinum
Ýmsar breytingar hafa orðið á
fiskmörkuðum landsins þar sem nrarkaðir
hafa verið að sameinast út og suður. Menn
hafa átt fullt í fangi með að henda reiður á
þessum breytingum, en Tryggvi Ótlarsson
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs íslands í
Ólafsvík er með þetta allt á hreinu.
„Upphaflega var þetta Fiskmarkaður
Breiðafjarðar og starfað á höfnunutn hér á
Snæfellsnesi. Svo sameinaðist
Fiskmarkaður Snæfellsness inn í reks-
turinn og á svipuðum tíina satneinasl
fiskmarkaðurinn á Akranesi og
Faxamarkaður undir nafni Faxamarkaðar.
Svo sameinast Faxamarkaður og
Fiskmarkaður Breiðfjarðar og þá var nafn-
inu breytt i Fiskmarkaður Islands sem svo
keypti fisktnarkaðinn í Þorlákshöfn. Nú
erum við á fimm höfnum á Snæfellsnesi, á
Akranesi, í Reykjavík og i Þorlákshöfn,“
sagði Tryggvi í samtali við blaðið og þar
með ættu allir að vera með á nótunum.
„Þessum breytingum öllum hefur verið
vel tekið bæði af viðskiptavinum og starfs-
fólki, sem er lykillinn að þvi að þetta gangi
upp. Fyrstu sjö mánuði ársins seldurn við
27.500 tonn og erum með rútnlega helm-
ingshlutdeild af fiskmörkuðum á landinu
eða 51%.. Fiskkaupendur eru alls staðar
að af landinu og vonandi verður einnig
farið að kaupa líka beint erlendis frá. Við
erum að opna tengingu á næsta ári svo
erlendir kaupendur geti tekið þátl í upp-
boðunutn urn Internctið," sagði Tryggvi
Óttarsson.
-En geta innlendir kaupendur keypt í
gegnum Netið?
„Nei, i langflestum tilvikum rnæta
menn bara á næsta útibúamarkað og
kaupa þar, en þeir geta líka keypt frá skrif-
stofum sínum ef þeir vilja. Það er hins
vegar dýr lausn svo það eru stærri aði-
larnir sem nota þá leið. Um leið og
Internetuppboð byrjar þá geta allir setið
við sína tölvu og boðið í.“
-Er tnikill munur á framboði og eftir-
spurn á fiski?
,Já, framboðið er of lítið miðað við
eftirspurn, en það hækkar verðið."
-Eru miklar árstíðarsveiflur í þessu?
„Það eru miklar sveiflur eftir árstíðum.
Langmest er að gera frá því í nóvember og
frant í byrjun apríl, með stoppi að visu í
hálfan mánuð í kringum jól og áramót.
Svo er rólegra það sem eftir er í apríl, þá er
hrygningarstopp, veiðibann og páskar. En
síðan fer smábátaflotinn á stað í byrjun
maí og mikið að gera frarn í júní en þá
tekur við rólegur tími í júlí og ágúst en fer
svo aðeins að taka við sér þótt það veiðist
yfirleitt lítið á haustin. En þetta er
heilmikil vertíð yfir annatímann og þá er
aldeilis líf í tuskunum."
-Þessi starfsemi kallar ekki á mikið man-
nahald?
„Á fiskmörkuðum hér á landi starfa um
100 manns. Hjá okkur starfa 34 sem þýðir
að við erurn bara með einn þriðja af starfs-
fólkinu en með rúmlega helminginn af
magninu. Það hefur því greinilega orðið
mikil hagræðing af þessum sameiningum.
Við getuni hins vegar ekki fækkað eða fjöl-
gað fólki í takt við sveifiurnar á starf-
seminni sem ég gat um,“ sagði Tryggvi
Óttarsson.
Sjómenn og útgerðarmenn athugið!
Rekum uppboðsmarkaði í öllum höfnum Snæfellsness, á Akranesi
í Reykjavík og í Þorlákshöfn. Útvegum löndun, ís og umbúðir.
Eigum ávallt fyrirliggjandi flestar tegundir beitu.
Einnig seljum við ýmsar rekstrarvörur t.d. ábót, baujur og belgi.
>------a I \
íiiiSmi
Ávallt til þjónustu reiðubúnir
Reykjavík
Sími: 562 3080
GSM: 861 5855
_
:ISKMARKAÐUR ISLANDS
E-Mail: tryggvi@fmis.is
Akranes Arnarstapi Rif Ólafsvík Grundarfjörður Stykkishólmur
Sími: 431 4333 Sími: 435 6777 Sími: 436 6971 Sími: 436 1646/436 1647 Sími: 438 6971 Sími: 438 1646
GSM: 894 2419 GSM: 891 7822 GSM: 896 4746/893 6846 GSM: 864 5571 GSM: 861 8446
Þorlákshöfn
Sími: 483 3038
GSM: 897 1504