Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Qupperneq 69

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Qupperneq 69
Fiskmarkaður íslands í Ólafs\ík Með 51% hlut af heildarmarkaðinum Ýmsar breytingar hafa orðið á fiskmörkuðum landsins þar sem nrarkaðir hafa verið að sameinast út og suður. Menn hafa átt fullt í fangi með að henda reiður á þessum breytingum, en Tryggvi Ótlarsson framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs íslands í Ólafsvík er með þetta allt á hreinu. „Upphaflega var þetta Fiskmarkaður Breiðafjarðar og starfað á höfnunutn hér á Snæfellsnesi. Svo sameinaðist Fiskmarkaður Snæfellsness inn í reks- turinn og á svipuðum tíina satneinasl fiskmarkaðurinn á Akranesi og Faxamarkaður undir nafni Faxamarkaðar. Svo sameinast Faxamarkaður og Fiskmarkaður Breiðfjarðar og þá var nafn- inu breytt i Fiskmarkaður Islands sem svo keypti fisktnarkaðinn í Þorlákshöfn. Nú erum við á fimm höfnum á Snæfellsnesi, á Akranesi, í Reykjavík og i Þorlákshöfn,“ sagði Tryggvi í samtali við blaðið og þar með ættu allir að vera með á nótunum. „Þessum breytingum öllum hefur verið vel tekið bæði af viðskiptavinum og starfs- fólki, sem er lykillinn að þvi að þetta gangi upp. Fyrstu sjö mánuði ársins seldurn við 27.500 tonn og erum með rútnlega helm- ingshlutdeild af fiskmörkuðum á landinu eða 51%.. Fiskkaupendur eru alls staðar að af landinu og vonandi verður einnig farið að kaupa líka beint erlendis frá. Við erum að opna tengingu á næsta ári svo erlendir kaupendur geti tekið þátl í upp- boðunutn urn Internctið," sagði Tryggvi Óttarsson. -En geta innlendir kaupendur keypt í gegnum Netið? „Nei, i langflestum tilvikum rnæta menn bara á næsta útibúamarkað og kaupa þar, en þeir geta líka keypt frá skrif- stofum sínum ef þeir vilja. Það er hins vegar dýr lausn svo það eru stærri aði- larnir sem nota þá leið. Um leið og Internetuppboð byrjar þá geta allir setið við sína tölvu og boðið í.“ -Er tnikill munur á framboði og eftir- spurn á fiski? ,Já, framboðið er of lítið miðað við eftirspurn, en það hækkar verðið." -Eru miklar árstíðarsveiflur í þessu? „Það eru miklar sveiflur eftir árstíðum. Langmest er að gera frá því í nóvember og frant í byrjun apríl, með stoppi að visu í hálfan mánuð í kringum jól og áramót. Svo er rólegra það sem eftir er í apríl, þá er hrygningarstopp, veiðibann og páskar. En síðan fer smábátaflotinn á stað í byrjun maí og mikið að gera frarn í júní en þá tekur við rólegur tími í júlí og ágúst en fer svo aðeins að taka við sér þótt það veiðist yfirleitt lítið á haustin. En þetta er heilmikil vertíð yfir annatímann og þá er aldeilis líf í tuskunum." -Þessi starfsemi kallar ekki á mikið man- nahald? „Á fiskmörkuðum hér á landi starfa um 100 manns. Hjá okkur starfa 34 sem þýðir að við erurn bara með einn þriðja af starfs- fólkinu en með rúmlega helminginn af magninu. Það hefur því greinilega orðið mikil hagræðing af þessum sameiningum. Við getuni hins vegar ekki fækkað eða fjöl- gað fólki í takt við sveifiurnar á starf- seminni sem ég gat um,“ sagði Tryggvi Óttarsson. Sjómenn og útgerðarmenn athugið! Rekum uppboðsmarkaði í öllum höfnum Snæfellsness, á Akranesi í Reykjavík og í Þorlákshöfn. Útvegum löndun, ís og umbúðir. Eigum ávallt fyrirliggjandi flestar tegundir beitu. Einnig seljum við ýmsar rekstrarvörur t.d. ábót, baujur og belgi. >------a I \ íiiiSmi Ávallt til þjónustu reiðubúnir Reykjavík Sími: 562 3080 GSM: 861 5855 _ :ISKMARKAÐUR ISLANDS E-Mail: tryggvi@fmis.is Akranes Arnarstapi Rif Ólafsvík Grundarfjörður Stykkishólmur Sími: 431 4333 Sími: 435 6777 Sími: 436 6971 Sími: 436 1646/436 1647 Sími: 438 6971 Sími: 438 1646 GSM: 894 2419 GSM: 891 7822 GSM: 896 4746/893 6846 GSM: 864 5571 GSM: 861 8446 Þorlákshöfn Sími: 483 3038 GSM: 897 1504
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.