Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Blaðsíða 36
Ingimundur Valgeirsson
Málfundir ibibsi öryœijiiiál
sjófa enda 2@íí)*j“2é®(6
Þriðja grein
Hér lýkur Ingimundur
Valgeirsson að segja frá
málfundum um öryggismál
sjómanna sem fram fóru 2005-
2006.
Fundurinn í Vestmannaeyjum var
haldinn 3. mars 2006 í Akóges húsinu.
Fundarstjóri var Bergur Elías Agústsson
bæjarstjóri. Fyrirlesarar af heimaslóð
voru Magnús Kristinsson og Valmundur
Valmundsson.
Ef þyrla biluð þá fréttnæmt
Magnús fór vítt og breytt í ræðu sinni.
Hann sagði Eyjamenn ósátta við að missa
Vestmannaeyjaradíóið en svona fleygir
tækninni fram og þetta flyst til og er nú
komið til Reykjavíkur og við því er ekk-
ert að gera. Magnús sagði það athyglisvert
hversu mörgum verkefnum Vaktstöð sigl-
inga sinni og taldi fulla þörf á að kynna
starfsemina sem víðast.
„Einu skiptin sem við heyrum eitthvað
af vaktstöðinni í fjölmiðlum þá er það
alltaf þegar eitthvað bjátar á og ég tala
ekki um þegar það er eitthvað neikvætt.”
Einnig má gagnrýna þá umfjöllun sem
hefur átt sér stað þegar þyrlurnar eru
ekki tiltækar vegna viðhalds eða bilana.
f>á er ekkert frekar sagt frá þeirri aðstoð
sem við þó fáum frá öðrum þegar svona
stendur á og oftar. Þakka ber Gæslunni
fyrir það hvað hún á gott samstarf við
þessa aðila, bæði Kanann og Danina um
þessi málefni.
Magnús sagði útgerðarmenn í
Vestmannaeyjum ekki ósátta við að
senda sjómenn á öryggisfræðslunám-
skeið og þeir telji ekki eftir sér að greiða
þau fyrir áhafnir skipa sinna. Það stend-
ur heldur ekki í þeirn að senda menn á
endurmenntunarnámskeið í samræmi
við 5 ára kröfuna. En mismununin og
það dapra í þessu er að hægt sé að gera
út nokkur hundruð trillur við íslands
strendur án allra kjarasamninga. Hann
sagði að um þessar trillur væru svo til
engin lög eða reglur varðandi örygg-
isfræðslu.
Léttbátar og námskeið
Magnús sagði að útgerðarmenn væru
örugglega allir mjög fúsir til að ýta við
því að allt sé gert rétl um borð í skip-
unum og að hann væri nokkuð viss urn
að all flestir skipstjórar framkvæmi þær
skylduaðgerðir og æfingar sem krafist
er um borð í skipum þeirra. Hann sagð-
ist allavega heyra það til dæmis þegar
farið er á léttbátum rnilli skipa að þá er
tækifærið oft notað og æfingar haldnar
samhliða. Það mætti jafnvel koma með
einhverjar kröfur á þessi stærri skip um
að menn fari á námskeið í notkun létt-
báta.
Magnús sagði skyndiskoðanir
nauðsynlegar til að veita aðhald
og að bæta mætti inn í eftirlitsþátt
Landhelgisgæslunnar að láta áhöfnina
framkvæma ákveðnar öryggisráðstafanir
t.d. að láta akkerið falla. Þetta er örugg-
lega veikur hlekkur hjá mörgum.
Það er regla hjá okkur allavega á stærri
skipunum að vera með nýliðafræðslu
þar sem farið er með nýliða um skipið
og kynntir fyrir honum allir þætti. Það
er nauðsynlegt, sagði Magnús. í þessum
stærri skipum er kannski meiri slysa-
hætta og þarf því að fara vel í gegnum
þær hættur sem þar kunna að leynast
og einnig er margt sem þarf að kenna
nýliðum.
Magnús kom einnig inn á mikilvægi
góðrar hönnunar skipa og vinnuað-
stæðna um borð. I Iokin talaði hann um
upphaf tilkynningarskyldunnar og und-
irstrikaði mikilvægi hennar með frásógn
af sjóslysi.
Valmundur: rannsóknarnefnd
sjóslysa fín
Valmundur sagði varðandi öryggismál
að æfingarnar skorti hjá sjómönnum.
„Eg viðurkenni það fúslega að við
sjómenn erum oft latir við að halda þær
og það er mjög gott að vita af þvi að við
getum fengið aðstoð hjá Hilmari og hans
mönnum til að koma okkur af stað í
þessu og að koma þessum hlutum í lag
hjá okkur um borð.”
Valmundur kom inn á rannsókn-
arnefnd sjóslysa og sagði að nefndin væri
búin að vinna mikið og gott starf und-
anfarin ár. Nú er hægt að fara inn á vef
nefndarinnar og skoða afgreiðslu mála og
einnig er útgáfa á skýrslum nefndarinn-
ar loksins komin í þokkalegt lag. Hann
sagði að það vanti staðlað skýrsluform
fyrir tilkynningar um slys og að ef eyðu-
Eyjamaðurinn Magnús Kristinsson gagnrýndi neikvæða umfjðllun fjölmiðla, þeir hefðu til dœmis meiri
áhuga á biluðum þyrlum en heilum. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson
36 - Sjómannablaðið Víkingur