Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Blaðsíða 50
Sigling um Netið
í umsjón Hilmars Snorrasonar
Enn á ný eru jólin að nálgast og eins
og svo oft áður vil ég hvetja netlesendur
að nota lausan tíma um hátíðarnar til að
flakka um netið. Afþreyingarmöguleikar
netsins eru óteljandi en sumar síður
gefa meira af sér en aðrar. Fyrsta síðan
að þessu sinni er okkur ekki ókunnug
en hún hefur tekið miklum breyting-
um frá því ég fjallaði um hana síðast.
Panamaskurðurinn á slóðinni www.panc-
anal.com er virkilega skemmiileg síða þar
sem meðal annars má sjá vefmyndavélar
frá þremur stöðum við skurðinn. Síðan
er alveg mögnuð hvað varðar skoðunar-
möguleika og ætti að vera áhugaverð fyrir
þig lesandi góður.
Mikla upplýsingasíðu er að finna á
slóðinni www.ship-info.com sem er norskt
fyrirtæki sem meðal annars gefur út
myndskreyttar skipaskrár. Á síðu þeirra
eru fréttapistlar og upplýsingar um skip,
þjónustu, ráðgjöf og ráðningar svo eitt-
hvað sé nefnt. Vissulega hægt að staldra
lengi við.
Björgunarskip eru mikilvægur þáttur í
öryggi sjófarenda en til að gera sér grein
fyrir hversu víða þau er að finna skaltu
kíkja á slóðina www.lifeboats24-7.co.uk
en þar er fjallað um björgunarskip. Það
er mikið af upplýsingum á þessari síðu
sem tengir saman félaga í sjóbjörgunar-
sveitum víða um heim í endalausum
áhuga þeirra á þessum málaflokki. Nú
geta til dæmis áhugamenn um líkana-
smíði séð hvernig líkan af björgunarskipi
verður til, allt frá því að fyrsta spítan
er sett og þar til líkanið er prufukeyrt.
Fjöldi Ijósmynda eru á síðunni sem og
umræðuvefur.
írskt skipafélag sem heitir Arklow
Shipping er svo lánsamt að áhugamað-
ur hefur setl upp mjög skemmtilega
síðu um skip félagsins og meðal ann-
ars safnað myndum víða að af skipum
þess. Slóðin http://arklowshipping.web-
log.nl segir sögu skipafélagsins. Petta
skipafélag hefur meðal annars komið við
í Straumsvík á undanförnum árum og
hefur sá sem þetta ritar ljáð ljósmyndir af
skipum félagsins þar sem þau liggja þar
við bryggju. Ef þið lesendur góðir eigið
myndir af skipum félagsins þá er eigandi
síðunnar að falast eftir slikum myndum.
Fyrir veðurþyrsta sjómenn ætla ég
að hafa tvær síður um það efni sem ég
hvet ykkur til að skoða. Sú fyrri www.
wettermonitor.de/ er þýsk og er meðal
annars ætluð radíóamatörum en einnig
okkur hinum. Þar er hægt að kaupa for-
rit sem sett eru í tölvurnar okkar og ættu
m.a. að geta látið veðurskeyti og Navtex
upplýsingar berast til okkar. Flin síðan er
íslensk og benti einn lesandi blaðsins mér
á hana. Slóðin er www.belgingur.is og þar
má sjá veður og veðurhorfur framundan
i 3 og 9 km hæð. Alveg frábær síða sem
þið ættuð að skoða.
Fyrst við erum farin að skoða íslenska
heimasíðu þá skulum við halda áfram
á þeirri slóð. Einn af velunnurum
Sjómannablaðsins Víkings, Jón Páll
Ásgeirsson stýrimaður, er með heimasíðu
á slóðinni www.123.is/jonpa/ þar sem
margar myndir hans er að finna. Jón Páll
hefur tekið fjðlda mynda fyrir Víkinginn,
átt forsíðumyndir sem og tekið þátt i ljós-
myndakeppnum blaðsins og unnið þar
til verðlauna. Fyrir ykkur lesendur sem
eruð að munda myndavélar þá er lilvalið
að fara sömu leið og Jón Páll, setja upp
heimasíðu og að sjálfsögðu að taka þátt í
ljósmyndakeppninni hjá okkur.
Myndasíða fiskiskipa má finna á slóð-
inni www.fiskeskibe.dk en þar er danskur
sjómaður, Rasrnus Christoffersen, sent
hefur safnað myndum af evrópskunt
fiskiskipum frá ýmsum ljósmyndurum.
Ef þið viljið deila fiskiskipamyndum
ykkar þá endilega setjið ykkur í samband
við Rasmus en netfang hans er að finna á
síðunni.
Áhugasamir dráttarbátamenn finna
efni við sitt hæfi á www.tugspotters.com
en þar er áhugamaður sem er með nrikið
safn af dráttarbátamyndum ásamt fleiru.
Ef þið hafið áhuga á að kaupa ykkur
dráttarbát þá er þar sölusíða og margt
fleira. En það er víða sem áhugamenn
um dráttarbáta geta fundið áhugavert efni
en á síðunni www.lekko.org er hægt að fá
allar upplýsingar um tímaritið Lekko sem
fjallar um drátlarbáta.
Lokasiðan að þessu sinni fjallar um for-
tíðina eða ferðalög með farþegaskipum
síðustu aldar. Um er að ræða nettímarit
sem hægt er að gerast áskrifandi að en
það er að finna á slóðinni www.garem-
aritime.com/. Hér er að finna fyrsta
tímaritið og má meðal annars sjá myndir
af Queen Mary fara í sína fyrstu för.
Að lokum vil ég ntinna ykkur, lesendur
góðir, á að ef þið rekist á skemnttilegar
síður þá sendið þær áfram til mín á slóð-
ina iceship@heimsnet.is. Góðar slundir.
Jólavísa
eftir Bjarna frá Gröf
Kvöldin lengjast, hverfur sóliii
hak er í skuggunum.
Þá birtast okkur blessuð jólin
í búðargluggunum.
50 - Sjómannablaðið Víkingur