Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Blaðsíða 8
Formannaráðstefna FFSÍ
Mikil umskipti hvað varðar
kjör fiskimanna
Árni Bjarnason forseti FFSÍ
Ef menn sjá ekki og skynja
mikilvægi sjávarútvegs-
ins hérna í Vestmannaeyjum
hljóta þeir að vera bæði blindir
og heyrnarlausir," sagði Árni
Bjarnason, forseti Farmanna- og
Fiskimannasambands íslands,
í samtali við Víking að lokinni
formannaráðstefnu FFSÍ. Hin
margvíslegustu málefni fiski-
manna voru rædd en Árni segir
stöðuna vera með besta móti í
dag.
„Hjá fiskimönnum er staðan með því
besta sem hún hefur verið i háa herrans
tíð. Maður hafði það á tilfinningunni um
síðustu áramót að ef ekki yrði breyting á
gengi krónunnar strax þá myndi sjávarút-
vegurinn fara fjandans til. Sjómenn voru
þá yfir alla línuna ofboðslega illa staddir,
þeir höfðu þá lækkað í launum um tugi
prósenta bara útaf gengisþróun. Síðan
þá hefur þessi sterka króna gefið eftir og
verðið þá um leið hækkað umtalsvert á
okkar afurðum. Eg held að það verði að
leita ansi langt aftur til að finna einhverja
hliðstæðu hvað þetta varðar.“
Ykkar félagsmenn eru þá yfir
heildina jákvæðir núna?
,Já, en reyndar eins og ég kom inn á í
ræðu minni þá á þetta ekki alveg við alla.
Það er hluti af fiskimönnum f dag sem
hefur aldrei búið við jafn mikla óvissu
og núna. Þá er ég til dæmis að tala um
þá sem treysta á loðnuvertíðina, þar eru
bara aðstæður sem við ráðum ekki við.
Breytingar í hafinu, heitari sjór og eitt-
hvað sem veldur því að óvissan í grein-
inni er meiri en nokkru sinni fyrr. Ég
hef heyrt í þó nokkuð mörgum af okkar
umbjóðendum sem segjast ekki þora i frí
eða neitt stopp því þeir vita ekki hvað er
framundan."
Er eitthvað sem þið getið gert í
þeim málum fyrir sjómenn?
„Það eina sem gerist er að þessi grunn-
krafa sjómanna um kauptryggingu sem
hægt er að lifa á verður háværari. Það
dugir ekki að vera með tryggingu sem
telur ekki neitt í núverandi þjóðfélagi.
Þegar menn eru í einhverju ástandi þar
sem stöðugleikinn er takmarkaður, á
sama tíma og kröfur fólks til lífsgæða eru
alltaf að aukast. Þetta gæti endað með
því að enginn fengist lengur til að sækja
fiskinn fyrir okkur.
Það verður að tryggja að sjómenn hafi
það góð kjör, að fórnin sem er fólgin í
því að vera á sjó skili sér. Ef menn eru
með einhverjar 200 þúsund krónur á
mánuði í kauptryggingu og þurfa að búa
við það einhverja mánuði árlega, jafnvel
fleiri en færri, að fá ekkert umfram trygg-
inguna þá getum við bara gleymt þessu.
Þá fara menn í land og finna sér eitthvað
annað að gera.“
Svo mál sjómann snúast um
meira starfsöryggi?
Já, starfsumhverfið og svo auðvit-
að öryggið á sjónum. Ég held samt að
útgerðarmenn skynji þetta alveg eins og
við. Þeir vita að ef þeir ætla að fá góða
menn sem eiga að skila miklurn verð-
mætum á land þá verða þeir að horfa til
þess að menn hafi það góða afkomu að
þeir vilji halda áfram að vera á sjónum.
Ég held til dæmis að þessi samningur
sem við gerðum við Brirn á dögunum,
þar sem uppgjör er einu sinni í mánuði
og menn eru með lágmarkstryggingu þar
sem skipstjórinn er til dæmis með 600
þúsund á mánuði þótt hann fái ekki í
soðið, sé breyting í rétta átt. Þetta tel ég
vera einhvern grunn að þvi sem koma
skal. “
En hvernig var fundurinn í
Eyjum?
„Það eru engar ályktanir hér sem
munu valda neinum straumhvörfum en
það sem ég held að við fáum út úr þessu
er að þétta hópinn og kynnast betur, það
er það sem mér finnst stærsti pósturinn í
þessari fundarsetu hér í Eyjum.
Ég held ég sé miklu meiri vinur manna
sem eru hérna heldur en ég var í gær,“
sagði Árni áður en hann hélt heim á leið
að nýju.
8 - Sjómannablaðið Víkingur