Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Blaðsíða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Blaðsíða 46
Sjöfn hin fjórða. allri vinnuaðstöðu í brú og dekki, er ekki hægt að líkja við neitt nema byltingu. Þegar ég var fyrst með Vörð var ekki einu sinni kominn radar í hann. Það var ekki neitt til neins, einn frekar lélegur dýptarmælir og kompás og ekkert annað. Að stjórna skipi byggðist mikið á því hvað menn voru glöggir að þekkja bæði sjólag og annað. Þeir sem byrjuðu að róa frá nýjum stað urðu sjálfir að búa sér til mið í landi úr fjöllum og hólurn sem þeir þekktu ekki með nafni. Það var vandi að hitta á netin, menn voru náttúrulega oft það Iangt frá að sást ekki til lands. Þá settu menn bara á sig allt sem var í námunda við netin hjá þeim sjálfum og skrifuðu kannski eða höfðu í hausnum afstöðuna frá þessari eða hinni trossunni til sinnar trossu. Núna geta menn keyrl blindandi nákvæmlega á punktinn. Þegar ég byrjaði skipsstjórn var farið að styðjast við Asdic-tæki við að finna síld- ina. Þá var hún mikið til hætt að vaða, en þó kom það fyrir. Fyrstu Asdic-tækin sem komu voru þannig að maður þurfti alltaf að standa við þau og snúa þeim með höndunum. Aðbúnaður er líka orðinn allur annar. Á nútímaskipum hafa menn rúmgóðar vistarverur og öll þægindi. Á þessum 60 tonna bátum voru ellefu karlar á vertíð- inni. Hásetarnir og kokkurinn voru allir 1 lúkarnum þar sem líka var eldað og matást. Engin aðstaða var fyrir gallana, maður varð að fara í þetta rennandi blautt og alla vega. Þú hefur veitt mest af síld og þórshi. Hvort er skemmtilegra? Það er skemmtilegra að veiða síld. Það var alltaf svo mikill spenningur í sam- bandi við hana. Og þó. Þetta var allt jafn skemmtilegt held ég. Hvað er eftirminnilegasta vertíð eða veiðiferð sem þú hefur lent í? Þær eru nokkuð margar. Það er auðvit- að eftirminnilegast þegar maður er að taka sig upp og fara á nýjar slóðir og fær góðan afla. Ég gæti nefnt dæmi frá í hitli- fyrra, þá fórum við austur á Selvogsbanka og vorum að koma að vestan og fengum 47 tonn. Það var svo merkilegt að við lögðum þetta allt á lítinn blett og aðrir, sem voru í kringum okkur, fengu ekki nema bara smá brot af því sem við feng- um. Ég held hinir hafi verið mest með 16 tonn. Einu sinni vorurn við sunnan við land og þá tókum við okkur upp og fórum norður að Malarrifi og lögðum þar og fengum milli 30 og 40 tonn. Þetta eru náttúrulega þeir dagar sem standa upp úr hjá manni þegar maður fer að líta til baka. Það var líka gríðarlega skemmtilegur timi hérna á Víkinni á tímabilinu 1976 - 1978 þegar Vararbátarnir voru hér allir, Sjöfn, Frosti, Ægir Jóhannsson og Sigrún. Það var mikið kapp. Það var róið alveg rosalega stíft hérna, miklu, miklu stífara ; í heldur en frá öðrum verstöðvum. Ég held mér sé alveg óhætt að fullyrða það. Enda var þá mesti uppgangstíminn hér. Þá var hver einasta hönd hér sem hægt var að ná í í beitingu. Húsvíkingarnir kölluðu Grenivíkurbátana þá flotann ósigrandi. Svo hefðurðu einhvern tíma sökkt vel upp í stldinni? Ég held að sé nú einna eftirminnilegast þegar við fengum síldina á Verði gamla hérna í Haganesvíkinni. Við ætluðum að fara austur, vorum á leiðinni hérna út með Látraströndinni, þá var flugvél að leita og hafði séð einhverja síld vestur við Skaga svo við snerum vestur á bóginn og þegar við komum vestur á Haganesvík fundum við torfu. Til allrar lukku skipti hún sér áður en við fórum að kasta, við köstuðum á stærri helminginn og feng- unr alveg fullan bát. Ætli það hafi ekki verið svona 850 mál. (115 tonn) Og það er síðasta síldin sem fékkst þarna á Haganesvíkinni. Flotinn kom svo allur en það voru ekki nema einir þrír eða fjórir bátar aðrir sem fengu einhverja smáslatta. Hefurðu aldrei komist í hann krappan? Aldrei komist neitt í hann krappan nema þegar við vorum nærri búnir að sökkva Verði garnla út af Raufarhöfn. Við fengum svo stórt kast að við þurftum að skera frá okkur nótina, það var allt að fara niður, nótabáturinn og allt, svo við bara skárum á nótina og losuðum okkur við þetta en við náðum held ég 500 málum. Maður gerði sér kannski ekki grein fyrir því þá en þegar maður fer að hugsa um það núna þá hékk þetta auðvit- að allt á bláþræði og mátti engu muna að allt færi niður. Við vorum að vísu með gúmmíbát en ég er ekkert viss um að við hefðum komist af því báturinn hefði ábyggilega farið snöggt niður. Ég hef verið sérlega heppinn með það að lenda aldrei í neinum slysurn með mann- skap. Ég þakka því það að ég var oftast og langmest með þrælvana menn sem búnir voru að vera sjómenn alla sína tíð. Efþúfengir eitt ár og mœttir velja þér skip og veiðarfœri, mættir veiða hvað sem þú vildir og eins mikið og þú gœtíi; hvað mundir þú velja? Ég mundi velja þorskanet og vel útbú- inn 250 tonna bát. Mér fannst netaveiðin alltaf rosalega skemmtileg. Ég get ekki ímyndað mér annað en ég gæti alveg Ieik- andi veitt þúsund tonn. Það er kominn glampi i augun á karlinum. Hann færi ábyggilega létt með þessi þúsund tonn. Þegar hann var með Áskel, 73 tonna bát, á vetrarvertíðinni í Grindavík 1963 fékk hann á tólfta hundr- að tonn og var hæstur netabáta. Hann er á áttræðisaldri, búinn að standa hálfa öld í brúnni og hættur. Það þyrfti samt ábyggilega ekki að ganga lengi eftir honum til að fá hann á eina vertíð enn. 46 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.