Náttúrufræðingurinn - 1964, Qupperneq 8
100
NÁTT Ú RUFRÆÐ I N GU R 1 N N
Það var fljótlega hafizt handa um framkvæmdir og keypt nokkuð
af náttúrugripum, sem Stefán varðveitti fyrir félagið, þangað til
hann fór heim seinni hluta sumars santa ár.
í viðaukaákvörðun við lög félagsins var það ákvæði, að þegar
félagsmönnum heima á íslandi fjölgaði, og þeir yrðu orðnir eins
margir í Reykjavík og í Höfn, þá skyldi kjósa stjórn í Reykja-
vík og hún taka við störfum Hafnarstjórnarinnar. Stjórnin skrifaði
líka þeim Benedikt Gröndal og Þorvaldi Thoroddsen vorið 1887
og skoraði á þá að koma upp náttúrufræðifélagi í Reykjavík, en
ekkert varð úr því þá. Það var ekki fyrr en tveimur árum seinna,
sumarið 1889, að hreyfing komst á málið hér heima og þá fyrir
atbeina Stefáns Stefánssonar. Á stofnfundi kennarafélagsins í
Reykjavík, sem áður er vikið að, vakti Stefán máls á að stofna hér
náttúrufræðifélag og fékk það góðar undirtektir. Fékk Stefán
nokkra góða menn í lið með sér, og samkvæmt uppástungu Stefáns
var skrifað bréf, dagsett 9. júlí 1889, um stofnun slíks félags og
látið ganga meðal bæjarbúa til undirskrifta. Eins og ákveðið var
í bréfinu, svo svo haldinn stofnfundur náttúrufræðifélagsins 16. júlí
1889. Stefán setti fundinn og var fundarstjóri og framsögumaður.
Eftir nokkrar umræður las Steián upp frumvarp til laga fyrir félagið
og var það samþykkt á fundinum. Lögin voru í öllum aðalatriðum
samhljóða lögum Hafnarfélagsins, sem var svo lagt niður síðla þetta
sumar. Á stofnfundinum var kosin stjórn og skipuðu hana Bene-
dikt Gröndal, J. Jónasson, Björn Jensson, Stefán Stefánsson og
Þorvaldur Thoroddsen. Um störf Stefáns og Þorvalds í stjórninni
er ekki nánar ákveðið, þeir hafa verið eins konar meðstjórnendur,
enda var Stefán búsettur utan Reykjavíkur og átti því óhægt um
að taka beinan Jrátt í stjórn félagsins. Áhuga hans á viðgangi félags-
ins og velgengni þess naut ])ó að nokkru fyrstu árin, því bréfa-
skriftir voru tíðar milli hans og Benedikts Gröndals, sem var for-
maður félagsins. í bréfum sínum leggur Stefán á ýmis ráð og
livetur til, að félagið sýni með sér eitthvert lífsmark, að það verði
haldnir fyrirlestrar og gefin út skýrsla um starfsemi félagsins, að
söfnum Jiess verði komið í lag, þeim raðað niður, gerðar undir
Jjau hirzlur og þeim komið þar fyrir, svo hægt sé að hafa þau
almenningi til sýnis. Þar að auki skrifaði Stefán um félagið og starf
þess í blöðin, lýsti hinu mikilvæga hlutverki Jress og hvatti almenn-
ing til að styrkja það og styðja með náttúrugripagjöfum.