Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 66
Náttúrufræðingurinn
Eyrarrós fEpilobium latifolium) Itigibjörg Hjörleifsdóttir teiknaði.
fylgdi Oddur þeirri nafnvenju sem
tíðkaðist í Danmörku og öðrum
grannlöndum okkar. Hún er í því
fólgin að gefa tegundunum tvískipt
nöfn þar sem fyrra nafnið er ætt-
kvíslarnafn, nafnorð sameiginlegt
fyrir allar tegundir sömu ættkvíslar,
en það seinna er á einhvem hátt
lýsandi fyrir tegundina, oftast lýs-
ingarorð, en stundum dregið af
nafnorði.
Þessi venja var til komin vegna
hinnar alkunnu tvínefnareglu vís-
indalegra nafna sem sænski grasa-
fræðingurinn Carl von Linné inn-
leiddi á 18. öld. Sú regla öðlaðist
fljótlega hylli grasa- og dýrafræð-
inga og er fyrir löngu orðin viður-
kennd um heim allan. Samkvæmt
henni ber ættkvíslin sérstakt nafn
sem er alltaf eitt nafnorð eða ígildi
nafnorðs. Allar tegundir sömu ætt-
kvíslar fá þetta nafn sem fyrra nafn
en auk þess fá þær viðumafn sem
oftast er lýsingarorð.
Með hliðsjón af því gefur Oddur
öllum plöntuættkvíslum íslensk
nöfn sem oftast em fremur stutt og
laggóð en mörg hver nokkuð út-
lenskuleg, gjarnan þýðingar er-
lendra heita (t.d. Refshali2 fyrir
Alopecurus), stundum eftirlíkingar
fræðinafna (t.d. Entíana fyrir Genti-
ana, sem nú kallast Maríuvöndur)
en alloft gömul íslensk nöfn (t.d.
Fjóla fyrir Viola, Mura fyrir Poten-
tilla) og myndar svo tegundanöfn
með þau að seinna nafni. Þessi ætt-
kvíslanöfn má því kalla stofnnöfn
eða stofnheiti. Jafnframt tilfærir
hann alltaf þau alþýðunöfn tegund-
arinnar sem hann þekkti eða hafði
heimildir um en það var líka nokk-
uð tíðkað í erlendum flómbókum á
þessum tíma.
Til að skýra þetta er best að taka
dæmi: Ættkvíslin Achillea (Vallhum-
all) nefnist hjá Oddi Akkillisurt og
tegundin „Almenn Akkillisurt". ísl.
nöfn: jarðhumall, vallhumall. Þarna
mátti sem sagt velja um þrjú íslensk
nöfn á tegundinni, eitt fræðilegt og
tvö alþýðleg nöfn. Ættkvíslin
Thalictrum (Brjóstagras) kallast Fræ-
stjarna og tegundin „Fjalla Fræ-
stjama" og þar em fimm alþýðunöfn
gefin upp: vélindisurt, krossgras, júf-
ursmein, brjóstagras, kverkagras. Ætt-
kvíslin Ranunculus (Sóley) nefnist
Smjörblómstur (danska: smorblomst)
og sú alkunna planta brennisóley
nefnist því „Bítandi Smjörblómstur"
sem er bein þýðing úr dönsku. Birki
heitir „Hvítt birki" sem er þýðing á
Betula alba. ísl. nöfn: birki, björk, rif-
hrís.
Oft víkur Oddur þó frá tvínefna-
reglunni. Þannig heitir Betula nana
(fjalldrapi) bara „Dvergabirki" og
Salix herbacea (grasvíðir) „Dverga-
víðir". Ymsar starir og grös eru
einnefnd, svo sem „Rjúpustör" og
„Fjallastör", jafnvel þó nöfnin séu
stundum rituð með bandstriki, t.d.
„Tvíbýlis-stör", eða í tvennu lagi,
svo sem „Fjalla Sveifgras".
Um nafngiftir sínar farast hon-
um svo orð í formála bókarinnar
(bls. 7):
„Hvað áhrærir nöfn urtanna
og þeirra einstöku parta, hefi
eg leitazt við að smíða þau svo
lík túngu vorri, sem eg bezt
kunna, og þó á einstaka stað
orðið að brúka en útlenzku.
2 Ég rita íslensk ættkvíslanöfn í þessari grein með stórum upphafsstaf, til samræmis við fræðiheitin, en tegundanöfn með litlum staf. Hin tilbúnu tegundanöfn
Odds eru einkennd með gæsalöppum og stafsett að hans hætti. íslensk tegundanöfn eru skáletruð til áherslu.
64