Náttúrufræðingurinn - 1999, Side 5
TÓMAS JÓHANNESSON,
ODDUR PÉTURSSON,
JÓN GUNNAR EGILSSON OG
GUNNAR GUÐNI TÓMASSON
Snjóflóðið á Flateyri
21. FEBRÚAR 1999 OG
ÁHRIF VARNARGARÐA
OFAN BYGGÐARINNAR
Stórt snjóflóð féll úr Skollahvilft á Flateyri skömmu eftir hádegi 21. fehrúar 1999.
Nýbyggðir varnargarðar beindu því frá byggðinni og út í sjó austan eyrarinnar.
Þetta flóð var mun minna en mannskaðaflóðið 26. október 1995, en engu að síður
meðal stœrri flóða sem fallið hafa úr Skollahvilft á öldinni. Snjóflóðið 21. febrúar
er eitt ötfárra flóða í heiminum sem fallið hafa á leiðigarð og gefa mœlingar á því
mikilvœgar upplysingar um áhrifamátt slíkra varnarmannvirkja. Svo vel vildi til að
veðri slotaði sama dag og flóðið féll og voru öll ummerki þess mjög greinileg
daginn eftir þegar starfsmenn Veðurstofu íslands, ásamt nokkrum áhugamönnum,
mœldu útlínur flóðsins, þykkt snævar í tungunni, ummerki á garðinum og fleira sem
máli skiptir til þess að leggja mat á stœrð flóðsins og áhrif garðanna. Hér á eftir
verður gerð grein fyrir þessum mœlingum og þær bornar saman við flóðið í
október 1995.
Tómas Jóhannesson (f. 1957) lauk cand.mag.-prófi í
jarðeðlisfræði frá Háskólanum í Osló 1982 og
doktorsprófi í jöklafræði frá University of Washing-
ton í Bandaríkjunum 1992. Tómas starfaði hjá
Orkustofnun 1987-1995. Hann hefur starfað hjá
Veðurstofu íslands frá 1995.
Oddur Pétursson (f. 1931) var verkstjóri hjá
ísafjarðarbæ 1956—1982. Hann hefur starfað sem
snjóathugunarmaður Veðurstofu íslands á ísafirði frá
1984.
Jón Gunnar Egilsson (f. 1960) lauk prófi í
byggingartæknifræði frá Tækniskóla Islands 1988.
Hann hefur starfað hjá Veðurstofu íslands frá 1989.
Gunnar Guðni Tómasson (f. 1963) lauk prófi í bygg-
ingarverkfræði frá Háskóla Islands 1986 og meistara-
og doktorsprófum í verkfræði frá MIT í Bandaríkjunum
1988 og 1991. Hann starfaði hjá Verkfræðistofunni
Vatnaskilum hf. á árunum 1991-1994, var dósent við
Háskóla íslands 1993-1998, en hefur starfað á Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. frá 1995.
Náttúrufræðingurinn 69 (1), bls. 3-10, 1999.
3