Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1999, Blaðsíða 20

Náttúrufræðingurinn - 1999, Blaðsíða 20
orðið berghrun úr hamraveggnum. Myndaði það mikið framhlaup, sem er stórgrýtisurðin milli bæjanna Hraunsnefs og Hvassafells. Er talið að berghrun þetta hafi orðið löngu áður en land byggðist (Ólafur Jónsson 1957, 1976). VATNSRENNSLI NORÐURÁR Vatnsrennsli Norðurár er mjög mismikið, eins og þeir vita sem við Norðurá dveljast. Sama máli gegnir um lit árvatnsins. I lok ísaldar hefur þar vafalaust beljað fram leirugt jökulvatn. Norðurá er nú að mestu tær bergvatnsá, en stundum verður hún mjólkurlituð af leirlosi. í úrkomutíð og í vorleysingum getur hún orðið kolmórauð af jarðvegsframburði. Norðurá er nú að mestu leyti dragá með rnikið vatnasvið. Að henni safnast vatn af 506,8 ferkílómetrum lands og getur áin vaxið mjög ört á skömmum tíma. Meðalrennsli árinnar við Stekkinn mælist nú 22,8 m3 á sekúndu. Að vetri til getur það orðið dreitillítið og hefur minnst mælst 0,6 m3/sek. í miklum vatnavöxtum getur rennslið hins vegar orðið yfir þúsund sinnum meira en þetta lágmarksrennsli. Hinn 14. janúar 1992 mældist vatnsmagnið til dæmis 698 m3/ sek. (Vatnamælingar, Orkustofnun). Þá er Norðurá stórfljót og minnir á dágóða jökulá í vexti. Er áin þá orðin helmingi vatnsmeiri en Þjórsá í meðalrennsli. Af þessu sést að graftrarmáttur vatnsins í Norðurá hefur getað verið mikill í lok jökulskeiðs og allan þann tíma sem síðan er liðinn frá lokum ísaldar. Enn er árvatnið að dýpka gljúfrin og bera svarfið fram í nýjar eyrar. Og nú er jafnvel mannshöndin farin að breyta rennsli árinnar og leiða vatn hennar um laxastiga, meðfram vegum, í gegn um rör og undir brýr. HEIMILDIR Guðmundur Bárðarson 1923. Fomar sjávar- minjar. Rit 1, Vísindafélag Islendinga. Bls. 116. Guðmundur Kjartansson 1968. Jarðfræðikort af Islandi blað, 2. Miðvestur Island. Menningar- sjóður, Reykjavík. Haukur Jóhannesson 1997. Yfirlit um jarðfræði hálendis Mýrasýslu og yfir til Dala. Árbók Ferðafélags fslands 1997. Bls. 214-226. Ingrid U. Olsson 1988. Eðlisfræðistofnun, Upp- salaháskóla, Svíþjóð. (Heimild úr sendibréfi 19. okt. ‘88.) íslenskt fornbréfasafn I. Bls. 179. Jón Jónsson 1964. Bæli. Fomar eldstöðvar í Norðurárdal. Náttúrufræðingurinn 34. 174— 176. Ólafur Jónsson 1957. Skriðuföll og snjóflóð. Bókaútgáfan Norðri, Akureyri. Bls. 127-129. Ólafur Jónsson 1976. Berghlaup. Ræktunarfélag Norðurlands, Akureyri. Bls. 558-564. Pálmi Hannesson 1935. Borgarfjarðarhérað, Landfræðilegt yfirlit. í: Héraðssaga Borgar- fjarðar I. Félagsprentsmiðjan, Reykjavík. Bls. 11—48. Sturla Friðriksson 1962. Um aðflutning íslensku flórunnar. Náttúrufræðingurinn 32. T75-189. Vatnamælingar Orkustofnun. (Munnlegar upp- lýsingar.) Þorleifur Einarsson 1991. Myndun og mótun lands. Jarðfræði. Mál og menning, Reykjavík. 299 bls. PÓSTFANG HÖFUNDAR Sturla Friðriksson Skildingatanga 2 101 Reykjavík 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.