Náttúrufræðingurinn - 1999, Síða 40
HÁLFDÁN BJÖRNSSON
Þistilfidrildi
VERPA Á ISLANDI
eint í júlí 1996 fór ég að Skaftafelli
og í Bæjarstaðarskóg. Þar í nánd
fann ég fremur litla fiðrildalirfu af
tegund sem ég hafði ekki séð
áður; hélt hún sig á lúpínuplöntu og var í
samanvöfðum blöðum. Lirfa þessi var mikið
hærð, með hvíta hárdúska, gulleit á hliðum
með rauðgulum dflum, en aðallitur hennar var
þó dökkur. Grunaði mig strax að þetta væri
dagftðrildalirfa og þá helst lirfa þistilfiðrildis
(Vanessa cardui).
I ágúst og september sama ár fann ég 10-15
slíkar hærðar lirfur á alaskalúpínum á Kví-
Þistilfiðrildalirfa á lúpínu á Kvískerjum 5.
september 1996. Ljósm. Hálfdán Björnsson.
skeijum. Voru þær í samanvöfðum blöðunum
og sáust ekki fyrri en blöðunum var flett í
sundur. Tók ég lirfur og ól þær á lúpínublöðum
og klöktust tvö fiðrildi út 1. og 5. október það
haust. Reyndust það vera þistilfiðrildi. Senni-
Þistilfiðrildi. Lirfa klakin út 5. september
1996. Ljósm. Hálfdán Björnsson.
lega hafa þistilfiðrildi komið í júní og orpið í
lúpínur án þess að ég yrði þeirra var þá.
Þistilfiðrildi koma oft hingað til lands í júní
og aftur í ágúst og september en það virðist
vera útilokað að iirfur þeirra lifi veturinn af hér
á landi, ekki fremur en ýmsar aðrar fiðrilda-
tegundir sem flækjast hingað til lands og
reyna varp.
Ein þistilfiðrildalirfa hafði fundist hér á
landi 1949. í júní það ár barst mikill fjöldi
þistilfiðrilda til landsins og varð þeirra aftur
vart í nokkrum mæli um haustið en það voru
taldir vera afkomendur þeirra fyrrnefndu
(Wolff 1971).
Nokkur þistilfiðrildi voru á flögri á milli
skarifífla hér á Kvískerjum 29. september 1996
og virtust þau vera að koma til landsins um
það leyti, sem og mörg aðmírálsfiðrildi
(Vanessa atalanta).
Heimildir
Wolff, N.L. 1971. Lepidoptera. The Zool. of
Icel. III, Part45. Kaupmannahöfn. 193 bls., 15
myndasíður.
Hálfdán Björnsson (f. 1927) er bóndi á Kvískerjum
í Öræfum og sjálfmenntaður náttúrufræðingur.
38
Náttúrufræðingurinn 69 (1), bls. 38, 1999.