Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 55
1. mynd. Nashyrningseðla úr „The Dinosaur Book, the ruling reptiles and their relatives eftir E.H. Colbert. 1933. Þetta var mikið áfall fyrir Árna Friðriks- son enda hafði samvinna þeirra verið mjög góð svo ekki sé meira sagt. Blaðið kom út sex sinnum á ári og hvert blað var tvær arkir, þ.e.a.s. 32 blaðsíður, þannig að hver árgang- ur var 192 blaðsíður. Þrátt fyrir það mikla áfall sem Árni varð fyrir við lát Guðmundar, lét hann ekki deigan síga heldur keypti hlut Guðmundar heitins og gaf blaðið út og ritstýrði því einn allt fram til ársins 1941, en þá seldi hann Guðjóni Ó. Guðjónssyni Náttúrulfæðinginn en gegndi ritstjóra- störfum tvö árí viðbót, þ.e.a.s. árin 1941 og 1942. Árni var þannig útgefandi Náttúru- fræðingsins samfellt íl 0 ár en ritstjóri í 12 ár. Þetta er ótrúlegt afrek þar sem hann skrifaði ótal greinar í tímarit sitt um hin margvís- legustu efni náttúruvísindanna, stundum á alvarlegum nótum en þess á milli á gaman- saman hátt. Árið 1933 gaf ísafoldarprentsmiðja út bók eftir Árna sem hann nefndi „Mannætur". Undirtitill bókarinnar er „Helstu sníkjudýr mannsins". I inngangsorðum að bókinni segir Árni: „Orðið padda getur þýtt bæði ýmis skordýr og ormar og e.t.v. ennþá fleiri lægri dýr og ekki er það notað í virðulegri merkingu. En þrátt fyrir ímugust og lítils- virðingu almennings á smælingjunum í dýra- ríkinu þá eru þeir nú samt dýr jafn dásamlega og undursamlega úr garði gerð um útlit og starfsemi eins og sjálfur konungur jarðar- innar, maðurinn.“ Síðar í inngangsorðunum bætir Árni við: „Markmið bókarinnar er það að bregða ljósi yfir nokkur hinna merki- legustu fyrirbrigða sem þekkt eru í dýra- ríkinu. 20. öldin er komin hingað til íslands í allri sinni dýrð þrungin látlausri baráttu á öllum sviðum, stjórnmálaþófi, dægurþrasi, ríg og rógi. Vel væri ef lesendum kversins tækist að þoka hita og þunga dagsins á bug um stund og svala huga sínum við það sem við sjáum ef við lyftum huliðsblæju frá því mikla meistaraverki sem náttúran skapaði þegar sníkjudýrin urðu til.“ Árni lét ekki þar við sitja því að veturinn 1938-1939 flutti hann mjög skemmtilegan erindaflokk í Ríkis- útvarpið sem hann nefndi „Helstu sníkjudýr mannsins“. Því má með sanni segja að fræðarinn Árni Friðriksson hafi staðið við stóru orðin sem féllu við heimkomuna 1931 og vitnað er í hér að framan. 53

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.