Náttúrufræðingurinn - 1979, Qupperneq 7
Náttúrufrceðingurinn ■ 49 (I), 1979 • Bls. 1—80 ■ Reykjavik, júli 1979
Guðrún Larsen:
Um aldur Eldgj árhrauna
INNGANGUR
í V.-Skaftafellssýslu eru víðáttu-
niikil hraun upprunnin á gossprungu-
kerfi sem kenna mætti við Eldgjá og
Kötlu (Robson 1956; S. Jakobsson,
1978, í prentun). Gossprungukerfið
nær sunnan úr Mýrdalsjökli að Gjá-
tindi (1. mynd) og heldur áfram norð-
austan Uxatinda (G. Kjartansson,
1962). Hraunin runnu niður á lág-
lendi og mynda mikil hraunasvæði á
austanverðum Mýrdalssandi, í Meðal-
landi og í Landbroti (1. mynd). Yfir-
leitt mun ekki vera ágreiningur um
að hraun þessi séu upprunnin á Eld-
gjár-Kötlu gossprungukerfinu en urn
hitt greinir menn á hvenær og í hve
mörgum gosum þau hafi myndast (Þ.
Thoroddsen, 1894, 1908—11, 1925;
Sapper 1908; S. Þórarinsson, 1955,
1958; Robson, 1956; J. Jónsson, 1958,
1970, 1979*; S. Jakobsson, 1978, í
prentun). Verður vikið að Jressu síðar
í innganginum.
Miðað við núverandi landslag skipt-
ast Jressi hraun í þrjá hluta. Sunnan
Leirár og vestan Kúðafljóts eru hraun-
flákar með óglöggum mörkum, eink-
um að vestan, og verða Jreir hér kall-
aðir Álftavershraun og eru þá frátal-
in hraun í Kötlukrika. Nafnið verður
notað í eintölu í textanum en með
Jtví er Jx> ekki slegið föstu að um eitt
hraun sé að ræða. Ekki er fullljóst
hvaða leið Álftavershraun rann niður
á Mýrdalssand.
Austan Kúðafljóts rann Eldhraunið
frá 1783 yfir Jaessi fornu hraun og
fram af Jreim milli (núverandi) Botna
og Steinsmýrarbæjanna. Vestan þess-
arar hrauntungu frá 1783 mætti e. t. v.
kalla forna hraunið Leiðvallarhraun
en austan hennar er síðan Landbrots-
* I síðasta hefti Náttúrufr. (nr. 3-4, 48.
ár) birti Jón Jónsson grein um eld-
stöðvar og hraun í V.-Skaftafellssýslu.
Hluti liennar fjallar um sömu hraun og
hér ræðir um. Greinin, sem hér birtist,
var þá að mestu fullunnin. Æskilegt
hefði verið að ræða niðurstöður Jóns
um aldur hraunanna þar sem við á í
textanum. Þess er þó ekki kostur heldur
verður það sem á milli ber og hugsan-
legar ástæður Jæss rætt lítillega í við-
bæti við þessa grein.
1