Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 9
hraunið. Leíðvallar- og Landbrots-
hraun eru talin komin úr þeim hluta
gossprungukerfisins sem liggur milli
Svartahnúksfjalla og Gjátinds en
nafnið Eldgjá er yfirleitt notað um
nyrsta hluta þess. Mun Þorvaldur
Thoroddsen hafa bent á þetta fyrstur
rnanna (1894). Þau runnu fyrst í far-
vegum Nyrðri- og Syðri-Ófæru og síð-
an í farvegum Skaftár niður á lág-
lendið, sömu leið og Skaftárelda-
Iiraunið síðar.
í þessari grein verður fjallað um
aldur hraunanna sem talin voru upp
hér að framan. Aldursákvarðanirnar
byggjast á rannsókn á jarðvegi ofan á,
undir og við jaðra hraunanna. Gjósku-
lögin í jarðveginum segja til um ald-
ur hans. Með því að bera jarðvegs-
snið ofan á og undir hraununum sam-
an við jarðvegssnið utan þeirra, er
hægt að fá nokkuð glögga hugmynd
um hvenær tiltekið hraun rann.
Niðurstaða rannsóknarinnar er sú,
að Landsbrotshraun, Leiðvallarhraun
og Álftavershraun hafi myndast
skömmu eftir landnám á Islandi. Þau
virðast hafa runnið með svo stuttu
millibili að til greina kemur að telja
þau mynduð í einu og sama gosinu.
Hin eiginlega Eldgjá var virk á sama
tíma og hraunin mynduðust.
Þessi hugmynd er ekki ný af nál-
inni, Þorvaldur Thoroddsen setti
hana fyrst fram í Andvara 1894 og oft
síðan (1908—11, 1925). Þorvaldur
gerði ráð fyrir að þessi hraun liefðu
myndast í einu gosi á gossprungu sem
náði — þó ekki óslitið — sunnan frá
Mýrdalsjökli að Gjátindi í Skæling-
um og kallaði hann alla gossprung-
una Eldgjá og hraunin Eldgjárhraun.
Samkvæmt rannsóknum Sveins Jak-
obssonar (1978, í prentun) eru aðstæð-
ur á suðurhluta gossprungukerfisins,
næst Mýrdalsjökli, allmiklu flóknari
en Þorvaldur gerði ráð fyrir þegar
hann talaði um Eldgjá sem eina stóra
gossprungu. Þar eru margar eldstöðv-
ar og hraunstraumar. Ekki er ljóst
hvaða eldstöðvar voru virkar þegar
það sem hér er kallað Álftavershraun
myndaðist. Nokkrir hraunstraumar
frá suðurhluta gossprungukerfisins
gætu verið yngri en engin gögn eru
ennþá til um aldur þeirra.
Robson skipti hraunasvæðinu á
Mýrdalssandi niður í mörg hraun, m.
a. vegna millilaga úr vatnsborinni
ösku.
Jón Jónsson kallar hraunin, sem
nefnd voru hér að framan, einu nafni
Eldgjárhraun en tekur ekki afstöðu
til hvort þau eru mynduð í einu eða
fleiri gosum (1958, 1970, 1975). Hann
telur þau miklu eldri en Þorvaldur
gerði og Landbrotshraunið a. m. k.
5000 ára gamalt.
Sigurður Þórarinsson benti á að
mikið gjóskulag hefði myndast við
gos í hinni eiginlegu Eldgjá og taldi
líklegt að það væri jafngamalt Eld-
gjárhraununum austan Kúðafljóts —
eins og nú má telja fullvíst. Hann
gerði hins vegar ekki ráð fyrir að
hraunin á Mýrdalssandi væru mynd-
uð í því gosi.
Hér á eftir verða færð rök að ald-
ursákvörðununum. Rétt er að taka
það fram að í greininni er fyrst og
fremst verið að fjalla um aldur liraun-
anna eins og þau eru skilgreind hér
en engin afstaða tekin til eldstöðv-
anna sem þau runnu frá.
1 sameiningu verða þessi hraun köll-
uð Eldgjárhraun. Samanlagt eru þau
3