Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 24
ir og við jaðra Álftavershraunsins er
sú að verulegar líkur séu á að hraun
hafi runnið niður í Álftaver eftir að
land byggðist. Ekkert er hægt að full-
yrða um hvort þetta hraun rann alla
leið til sjávar við Alviðruhamra þar
eð ekkert snið fékkst þar neðra en
telja má víst að það nái suður fyrir
bæinn Hraungerði.
Snið utan Álftavershrauns
Erfitt hefur reynst að fá góð jarð-
vegssnið utan Álftavershraunsins.
Bestu sniðin í Álftaveri eru tekin í
haughúsgrunni og nýgröfnum skurði
á Þykkvabæjarklaustri.
1 botni haughúsgrunnsins á Þykkva-
bæjarklaustri, sem var um 3 m djúp-
ur, reyndist vera hraun. Erfitt er að
ímynda sér að það geti verið sarna
hraun og Álftavershraunið þótt 'jaðar
jress síðarnefnda sé aðeins í nokkur
hundruð metra fjarlægð. Samtals
eru um 50 gjóskulög í veggjum gryfj-
unnar ofan á hrauninu. Elsta Jrekkta
gjóskulagið ofan á þessu hrauni er
sérkennilegt ísúrt gjóskulag með nál-
arlaga kornum, það er auðrakið um
allt Miðsuðurland og finnst m. a. á
Heklusvæðinu. Af afstöðu nálalags-
ins til aldursákvarðaðra Heklulaga
hefur aldur jjess verið áætlaður um
2500 ár. Hraunið í gryfjubotninum
er töluvert eldra Jrar eð 40 cm jarð-
vegur er milli Jress og nálalagsins,
en ekki er varlegt að tiltaka nákvæm-
ari aklur en 2500—3000 ár meðan að-
cins eitt snið er fyrir hendi. Á land-
námsöld var allt að 2 m Jrykkur jarð-
vcgur ofan á Jressu hrauni.
Úr haughúsgrunninum liggur djúp-
ur frárennslisskurður því að yfirborð
Þykkvaboejarklaustur
8. mynd. Jarðvegssnið við Þykkvabæjar-
klaustur í Álftaveri. Sýnd er afstaða ræsis-
ins forna til þekktra gjóskulaga, m. a.
Landnámslags, Vlla. Ræsið virðist vera af
svipuðum aldri og Álftavershraunið. —
A soil profile at Þykkvabcejarklaustur,
Alftaver. It also shows an old ditch dug
shortly after the Norse settlement in Ice-
land.
Jressa eldra hrauns er undir núverandi
grunnvatnsborði. í bökkum hans sjást
leifar af gryfju eða ræsi og hefur það
verið stungið í jarðveginn. Ræsið ligg-
ur skásneitt á frárennslisskurðinn en
18