Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1979, Side 30

Náttúrufræðingurinn - 1979, Side 30
stöðum og Þykkvabæjarklaustri fyrir margvíslega fyrirgreiðslu og gestrisni á liðnum áruin. VIÐBÆTIR Eins og áður getur kemst Jón Jóns- son að annarri niðurstöðu um aldur Landbrotshraunsins en höfundur þess- arar greinar (J. Jónsson, 1979). Ástæð- an fyrir þessum mikla mun er mis- munandi túlkun á því hvernig þau ummerki, sem nú sjást í árbakkanum við Ytri-Dalbæ, eru til komin og hvaða hraun það er sem kemur fram undan jarðveginum þar. Báðir greinarhöfundar eru nokkurn veginn sammála um aldur jarðrasks- ins í þessu sniði. Jón telur það vera af völdum hlaups í Skaftá en ekki af völdum hrauns enda er vandséð að svo sé á þeim stað sem Jón tekur snið- ið. Séu fleiri staðir í árbakkanum skoðaðir kemur í Ijós að hraun stend- ur víða fram úr raskaða jarðveginum og að þar sem saman liggja jarðvegur og hraun er jarðvegurinn stundum rauðseyddur. I>að getur vart þýtt ann- að en að hraunið var heitt Jregar fundum þeirra bar saman. Skiptir í því sambandi ekki máli hvort hlaup í Skaftá bar jarðveginn á hraunið eða hraunið braut hann upp og tróðst undir liann; raskið og hraunið hljóta að vera jafn gömul fyrirbæri. Sam- kvæmt gjóskulagarannsóknum gerðist þetta skömmu eftir að land var num- ið. Sú niðurstaða er í fullu samræmi við J>að að jarðvegur eldri en land- nám hefur aldrei fundist inni á Land- brotshrauninu (sbr. bls. 7—10 í Jrcssari grein, snið 5 í S. Þórarinsson 1958 og persónulegar upplýsingar 1979; einnig snið á 10. mynd, Mjóaleira, í J. Jóns- son, 1979). Ef litið er á sniðið við Ytri-Dalbæ, sem Jón lýsir, eitt sér virðist neðsti lduti jarðvegsins þar vera óhreyfður á kafla. Undir Jjessum jarðvegi er hraun sem er ójjekkjanlegt frá Land- brotshrauninu í smásjá og telur Jón að um sama hraun sé að ræða. Hann gerir ráð fyrir að jarðvegurinn sé all- ur orðinn til eftir að hraunið rann. Samkvæmt C14 aldursákvörðun á gróðurleifum úr þessum jarðvegi ætti hraunið þá að vera um 5200 ára gam- alt (J. Jónsson, 1979). Sá sem Jtetta ritar telur, með hlið- sjón af öðrum stöðum í árbakkanum, að líta verði á a. m. k. tvo aðra mögu- leika í Jtessu sambandi. Annar er sá að hraunið neðst í sniði Jóns við Ytri- Dalbæ sé raunverulega 5200 ára gam- alt og Jtar sé um annað og eldra hraun en Landbrotshraunið að ræða. Hinn er sá að tota úr Landbrotshrauninu hafi þarna troðið sér inn í eldri jarð- veg, eins og víðar við hraunjaðarinn á Jressu svæði. Ekki er liægt að full- yrða að seigi mýrarjarðvegurinn ofan á hrauninu sé með öllu óhreyfður þótt hann hafi ekki brotnað upp í stykki á Jiessum kafla. Hann er ekki rauðseyddur næst hrauninu en gæti hafa bakast, sbr. harða mólagið sem Jón nefnir í lýsingu sinni á sniðinu. Ef til vill mætti skera úr um Jiessi atriði með Jrví að kanna yfirborð hraunsins Jtar sem Jrað kemur fram undan jarðveginum neðst í sniðinu en í Jtví er einhvers konar bólstra- myndun á kafla. Sú athugun gæti gef- ið vísbendingu um við hvaða aðstæð- ur hraunið kólnaði á Jressum stað. 24

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.