Náttúrufræðingurinn - 1979, Side 41
V
í skólanum 28. september (safnandi
Ágúst H. Bjarnason), og í Mennta-
skólanum við Sund er geymd ein
drottning, sem fannst á sama stað
þetta sama haust (safnandi Á. H. B.).
Síðan hefur tegundin fundist á nær
hverju ári, en aðeins er um stök ein-
tök að ræða, og virðist því ekki hafa
orðið meira úr landnámi tegundar-
innar hér á landi að sinni. Auk fyrr-
nefnds eintaks frá Menntaskólanum
við Tjörnina eru eftirfarandi eintök
varðveitt á Náttúrufræðistofnun Is-
lands:
Þerná, fundin lifandi í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð, Reykjavík, 10.
9. 1974 (safnandi Ingólfur Guðnason).
Drottning, fundin lifandi í ÁTVR að
Stuðlahálsi 2, Reykjavík, 8. 3. 1976
(safnandi Ulfar Björnsson), hefur lík-
lega komið til landsins með vínkassa.
Drottning, fundin lifandi í Kaffi-
brennslu Kaaber, Reykjavík, 4. 7.
1977 (safnandi ókunnur). Þerna, fund-
in lifandi innanhúss að Hellisgötu 33,
Hafnarfirði, 24. 9. 1978 (safnandi
Steingrímur Atlason).
Tegund þessi er mjög algeng og út-
breidd um alla Evrópu norður til 65°
N. Auk þess er hana að finna á Kan-
aríeyjum og á Madeira, í N.-Afríku,
Lillu-Asíu og áfram austur eftir Asíu.
Þá hefur hún flust inn til Nýja-Sjá-
lands og Tasmaníu á síðustu áratug-
um (Kemper & Döhring 1967; Gui-
glia 1972; Spradbery 1973).
Á Nýja-Sjálandi og Tasmaníu lifir
tegundin við afburðagóð skilyrði. Þar
kemur fyrir, að heilu sambýlin lifi
yfir veturinn, þ. e. bæði drottningar
og þernur, auk þess egg og lirfur. Slík
bú geta orðið geysistór og hýst marg-
ar verpandi drottningar. Hjá öðrum
tegundum er aðeins vitað um eítt
sams konar tilfelli, þar sem heilt bú
hefur lifað yfir vetur, en þar var um
að ræða tegundina Vespula vulgaris
L. í Kaliforníu (Spradbery 1973).
Búin eru fyrst og fremst í jarðhol-
um, en rannsókn á tegundinni á Bret-
landseyjum leiddi í ljós, að um 94%
athugaðra búa fannst á slíkum stöð-
umum (Spradbery 1973). Fyrir kemur
að þau séu staðsett í holum trjám eða
hangandi á trjástofnum eða greinum
(Aurivillius 1918; Spradbery 1973).
Búin eru oftast um 25 cm í þvermál
og hnattlaga, ef umhverfið þrengir
ekki að. Annars rnótast þau eftir rými.
Þau eru gerð úr nokkrum láréttum
klakhólfaplötum, eins og áður var lýst,
og eru umlukin pappírsskurn. Opin
á klakhólfunum snúa niður. Þykkt
skur'narinnar er breytileg (fer eftir bú-
stæðinu), en hún er gerð úr skeljalaga,
flötum flögurn. Pappírinn í búum
þessarar tegundar er mjög sveigjan-
legur, og eru þau því ekki ýkja brot-
hætt. Þau eru steingrá á lit (Sprad-
bery 1973).
Fjöldi einstaklinga í búi (þ. e.
heildarframleiðsla sumarsins) fer eftir
skilyrðum, en í nágrannalöndum okk-
ar getur hann orðið allt að 25000, og
hvert bú getur framleitt allt að 1100
drottningar. Á Bretlandseyjum fer
fjöldi einstaklinga í búunum fækk-
andi, eftir því sem norðar dregur
(Spradbery 1973).
Vespula vulgaris L.
Tegundin fannst hér fyrst 3. 11.
1970, en þá fannst ein drotlning dauð
í glugga í Bókaverslun Snæbjarnar,
Reykjavík (safnandi ókunnur). Ein-
takið er varðveitt á Náttúrufræði-
35