Náttúrufræðingurinn - 1979, Side 42
7. mynd. Hluti af klakhólfaplötu ýr geitungabúi (Vespula vulgaris L.), sem fannst í
Reykjavík sumarið 1978 (lengd hlutans 13 cm). Sum hólfanna eru lokuð með livítum
himnufaldi, en í þeim eru púpur, sem bíða þess að klekjast. — A part of the wasp nest
(Vespula vulgaris L.), found in Reykjavik in summer 1978.
stofnun íslands. Næst frétti ég af þess-
ari tegund síðastliðið haust (1978).
Þann 13. október kom að máli við
mig Jóhanna Sigurðardóttir, Laugar-
nesvegi 40 í Reykjavík, og hafði með-
ferðis tvo lifandi geitunga, karldýr og
þernu, sem reyndust tilheyra þessari
tegund. Jóhanna kvað dýrin vera úr
búi í garðinum við Laugarnesveg 42.
Ég fór samdægurs á staðinn ásamt
Kristbirni Egilssyni, líffræðingi, og
ekki var um að villast, að þar var um
bú að ræða. Það var staðsett í um 80
cm háum og um 60 cm breiðum grasi-
vöxnum moldarvegg í garðinum. Hola
var í vegginn miðjan, og var þar
greinilega iimgangurinn í búið. Reynt
hafði verið að loka ojjinu með spýt-
um. Einnig liafði verið reynt að eyða
búinu með því að kveikja eld við
opið, en allt kom fyrir ekki. í þessari
heimsókn safnaði ég alls 56 geitung-
um (16 karldýrum, 38 þernum og 2
drottningum) í kringum opið, en þar
ltéldu þeir sig í gróðrinum innan eins
metra frá opinu. Vegna þess hve kalt
var í veðri, voru geitungarnir ófleygir
og bærðu lítið á sér. Næsta dag (14.
október) safnaði ég 27 dýruni (2 karl-
dýrum og 25 þernum) við opið, en
þau voru jafn óvíg og fyrri daginn
vegna kulda. Tveimur dögum síðar
36