Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1979, Qupperneq 66

Náttúrufræðingurinn - 1979, Qupperneq 66
Hafa þau vafalítið orðið til undir gos- lok úr máttlitlum klepraslettum, sem smáþrengt hafa opin. í fjærstu og þynnstu sporðum hraunsins er úfið apalhraun, en þar hefur kvikan verið orðin seig og stökk, vegna kólnunar. Hraunið er grátt í brotsár, miðlungi fínkornótt, með allmiklu af örsmáum glitrandi dílurn (0,1—0,3 mm), sem gæti verið feldspat, og mjög strjálum stærri dílum, gulbrúnleitum (0,5—1 mm), sem gæti verið ólivin. Að díla- gerð er það ekki líkt öðrum hraunum í Kelduhverfi. Stœrð Ker.lingarhólahrauns Norðurmörk Kerlingarliólahrauns eru sums staðar sepótt og óglögg. Norðausturhorn þess nær langleiðina út undir Hól, ef norðlægi gíghóla- hryggurinn er meðtalinn. Síðan er all- mikil hvilft inn í hraunjaðarinn til suðurs (sjá 6. mynd), en norðvestur- hornið er óglöggt. Þar kemur það saman við annað hraun, líklega ekki ýkjagamalt, Skinnstakkahraun. En höfundur er ekki nógu kunnugur því hrauni til að segja neitt ákveðið um uppruna þess, útbreiðslu og aldur. Á jarðfræðikorti Kristjáns Sæmundsson- ar liggur mikil hraunálma (Hraun- garðar) á Jreim slóðum út á Sanda milli Kelduness og Krossdals, ofan á Bunguhrauni, en ekki er það Kerling- arhólahraun og ég efast um að allt sé það Skinnstakkahraun. Það er þó hvorki Stóravítishraun né Bungu- hraun. Á hraunálmunni milli Kelduness og Krossdals mældi ég nokkur jarð- vegssnið árið 1977, bæði nokkuð sunn- an þjóðvegar og norðan (7. og 8. snið, 7. mynd). í jarðvegi er þar alls staðar öskulagið H4, um 4000 ára gamalt, en hvergi fannst öskulagið H5, um 6150 ára gamalt. Hraunálman nyrst virðist vera á svipuðu aldursstigi og Bungu- hraunið lijá Fjöllum, en ögn yngri þó og öðruvísi að dílagerð og lit. Kerling- arhólahraun er miklu yngra, eins og sýnt verður hér á eftir (1.—2. snið, 7. mynd), og nær hvergi norður að þjóð- vegi vestan Hóls. Flatarmál Kerlingarhólahrauns, að meðtöldum norðlæga gíghólahryggn- um, er hér lauslega áætlað 12 km2, en um rúmmálið skal ósagt látið. Aldur Kerlingarhólahrauns Gróður er áberandi fátæklegri á Kerlingarhólahrauni heldur en á eldri hraununum í kring, en þau eru gróðursæl og víða runnlendi. Kerling- arhólahraun er aðallega vaxið gamb- urmosa og strjálu lyngi og burkna- gróður í gjám og gjótum. Hvergi hef- ur heppnast að komast að undirlagi hraunsins og sjá á hverju það bein- línis liggur. Það er ósprungið, laust við gjár og misgengi og sker sig þannig frá flestum Kelduhverfishraunum. Jarðvegur er í þynnsta lagi alls staðar á hrauninu. í rösklega 20 hol- um, gröfnum hér og jtar í hraundæld- um, fannst hvergi yngsta forsögulega öskulagið frá Heklu, H3, um 2800 ára gamalt. Það er aftur á móti á eldri hraununum við jaðra Kerlingarhóla- hrauns (5. snið). Snið 1 og 2 á 7. mynd eru dæmigerð fyrir Jtykkasta jarðveg- inn á lnauninu (í hraundældum), og á Jtað líka við um staka gjallgíginn og norðlægu gíghólkeðjuna (3. og 4. snið, 7. mynd). Með samanburði við snið í fornum 60
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.