Náttúrufræðingurinn - 1979, Síða 70
Kjartan Thors:
Könnun hafsbotns með botnsjá
Á síðustu áratugum hafa orðið stór-
stígar framfarir í rannsóknum á gerð
og eðli hafsbotnsins. Sívaxandi áhersla
hefur verið lögð á slíkar rannsóknir,
ekki síst vegna nýtingar ýmissa auð-
linda á og í hafsbotninum. Auknum
umsvifum á þessu sviði hafa fylgt
tækninýjungar, sem auðvelda lausn
hinna ýmsu vandamála, sem við er að
fást. Ein þessara tækninýjunga er
botnsjá, sem hér verður gerð að um-
talsefni.
Islenska lieitið botnsjá er notað um
tæki, sem á ensku nefnist side-scan
sonar. Englendingar eru höfundar
þeirrar tækni, sem hér um ræðir, og
hafa unnið mikið starf í þróun tækja
og túlkun niðurstaðna. Botnsjáin er
afkomandi Asdic-tækja, sem notuð
voru við kafbátaleit í síðari heims-
styrjöldinni og Jrví náskyld fiskileitar-
tækjum nútímans. Þessum ættingjum
botnsjárinnar er ætlað að finna hluti
eða lífverur í sjónum, en botnsjáin
beinist hins vegar að því að gefa mynd
af hafsbotninum með bergmálstækni.
fíotnsjártœkni
Botnsjáin starfar á þann hátt, að
stutt hljóðmerki eru send skáhallt nið-
ur til botns og bergmál af þeim skráð
á pappír. Á 1. rnynd er sýnt hvernig
þetta gerist. Efri hluti myndarinnar
sýnir hvernig hljóðmerki dreifist út
frá botnstykki (,,fiski“), sem dregið er
á eftir skipi. Hljóðið endurkastast af
hafsbotninum og bergmál hinna ýmsu
geisla merkisins berst til baka til
fisksins í tímaröð, sem stjórnast af
lengd geislanna. Fyrsta bergmál er
venjulega af botni beint undir fisk-
inum (geisli a á 1. mynd) og síðast
berst bergmál frá fjarlægasta hluta
botnsins (geisli f).
Á neðri hluta 1. rnyndar er sýnt,
hvernig útskrift botnsjárinnar gæti
Iitið út miðað við þann botn, sem
sýndur er ofar á myndinni. Þar kem-
ur fram, að landslag á botninum hef-
ur talsverð áhrif á útskriftina. Fletir
sem snúa á rnóti hljóðgeislanum
endurkasta hljóðinu betur en flatur
botn, sem dreifir miklum hluta af
nterkinu. Fletir, sem snúa í átt frá
hljóðgjafanum, lenda í „skugga“, eins
og sýnt er á myndinni. Af þessum sök-
um er botnsjáin nytsamlegt tæki til
könnunar á lögun hafsbotnsins.
Til viðbótar við upplýsingar um
landslag gefur botnsjá góða hugmynd
Náttúrufræðingurinn, 49 (1), 1979
64