Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 76

Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 76
Bréf til Náttúrufræðingsins Olíuslys veldur dauða himbrima Smáritið B. T. O. News er frétta- og npplýsingablað bresku fuglamerkinga- og vísindastöðvarinnar British- Trust for Ornithology (B.T.O.). í nýlegu hefti þessa rits (nr. 98, febrúar 1979) segir frá sex rneiri háttar oliuóhöppum sem urðu við tíretlandseyjar á timabilinu október 1978 til janúar 1979. Eitt versta þessara slysa, sem er kennt við Sullom Voe, varð við Hjaltlandseyjar um áramótin 1978/1979. Má búast við því, að það hafi afdrifaríkar afleiðingar fyrir íslenska himbrimastofninn. Islenski varp- stofn þessarar tegundar hefur verið áætl- aður 100—300 pör (sjá Votlendi, Rit Land- verndar 4, bls. 103), eða 200—600 fuglar. Nú má gera ráð fyrir nokkru af ókyn- þroska fuglum í heildarstofni íslenskra himbrima, og er því heildarfjöldinn all- miklu meiri. A olíumengaða svæðinu höfðu fundist um 3700 dauðir fuglar 49 tegunda í apríl/ maí 1979 (Scottish Birds, 1979, 10 (5), bls. 200). Þar af voru 155 himbrimar, eða 25— 50% þess stofns, sem heldur sig á Hjalt- landseyjasvæðinu að vetrarlagi. Eftir þetta liefur mér borist bréf breska náttúruvernd- arráðsins (Nature Conservancy Council), sem lýsir áhyggjum viðvikjandi himbrima- stofninum vegna þessa olíuslyss, en þessi tegund verpur hvergi í Evrópu nema á ís- landi. Má því gera ráð fyrir, að himbrim- ár þeir, sem halda sig við Bretland á vet- urna, séu flestir íslenskir að uppruna. Það skarð, sem höggvið hefur verið í íslenska himbrimastofninn með þessu olíuslysi, er því gífurlegt, eða e. t. v. allt að 50% alls stofnsins. Margir hefðbundnir varpstaðir þessarar tegundar hér á landi kunna því að verða án himbrima á komandi sumri. Eg vil að lokum beina þeim eindregnu tilmælum til allra að láta mig vita um þá staði, þar sem himbrimar hafa orpið siðastliðin ár, bæði þá þar sem engir him- brimar verða og jrá sem himbrima er að finna sumarið 1979. Ævar Petersen, Náttúrufræðistofnun íslands Box 5320, 125 Reykjavík. Nýtt hefti Acta Botanica Islandica Fimmta hefti Acta Botanica Islandica er nýlega komið út; en þetta rit, sem ber undirtitilinn Tímarit um íslenzka grasa- fræði, Jró það sé í raun ekki tímarit þar sem j)að kemur ekki út reglulega, hefur nú verið gefið út í átta ár. Útgefandi var í fyrstu Menningarsjóður, en tvö síðustu heftin hefur Náttúrugripasafnið á Akur- 70

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.