Náttúrufræðingurinn - 1979, Síða 79
Eyþór Einarsson:
Skýrsla um Hið íslenska
náttúrufræðifélag 1978
Félagar
SkráSir félagar og kaupendur Náttúru-
fræðingsins í árslok 1978 voru sem hér
segir: Heiðursfélagar voru 5, kjörfélagar
3, ævifélagar 57, ársfélagar hér á landi
1710; áskrifendur Náttúrufræðingsins hér
á landi (einkum stofnanir og félög) 70,
félagar og áskrifendur Náttúrufræðings-
ins erlendis (dálítið erfitt er að greina þar
á milli) eru 60. Alls eru félagar og áskrif-
endur því 1905 og liefur fjölgað um 31 á
árinu; 57 nýir félagar hafa bæst við, 18
sagt sig úr félaginu og kunnugt er stjórn-
inni um að 8 félagar hafi látist á árinu.
Stjórn og aðrir starfsmenn
Stjórn félagsins var þannig skipuð: For-
maður var Eyþór Einarsson, grasafræð-
ingur, varaformaður Leifur Símonarson,
jarðfræðingur, gjaldkeri Ingólfur Einars-
son, verslunarmaður, ritari Sólmundur
Einarsson, sjávarlíffræðingur og með-
stjórnandi Baldur Sveinsson, verkfræðing-
ur.
Stjórnin hélt 7 stjórnarfundi á árinu.
I varastjórn voru Bergþór Jóhannsson,
grasafræðingur og Einar B. Pálsson, verk-
fræðingur.
Endurskoðendur voru Eiríkur Einars-
son, verslunarmaður og Magnús Sveins-
son, kennari.
Varaendurskoðandi var Gestur Guð-
finnsson, blaðamaður.
Ritstjóri Náttúrufrœðingsins var Kjart-
an Thors, jarðfræðingur.
Afgreiðslumaður Náttúrufrœðingsins
var Stefán Stefánsson, fyrrverandi bóksali.
Stjórn Minningarsjóðs Eggerts Ólafs-
sonar skipuðu Guðmundur Eggertsson,
erfðafræðingur, Ingólfur Davíðsson, grasa-
fræðingur og Sólmundur Einarsson, sjáv-
arlíffræðingur, en hann var jafnframt
gjaldkeri sjóðsins.
Varamenn i stjórn Minningarsjóðs E. Ó.
voru Ingimar Óskarsson, náttúrufræðing-
ur og Sigurður H. Pétursson, gerlafræð-
ingur.
Aðalfundur
Aðalfundur fyrir árið 1978 var haldinn
laugardaginn 24. febrúar 1979 i stofu nr.
422 í Arnagarði við Suðurgötu í Reykja-
vík. 14 félagar sóttu fundinn. Fundarstjóri
var kjörinn Einar B. Pálsson, verkfræð-
ingur, og fundarritari Axel Kaaber, fram-
kvæmdastjóri.
Formaður minntist látinna félaga og
flutti skýrslu um störf félagsins á árinu.
Reikningar félagsins voru lesnir upp og
samþykktir.
í umræðum um skýrslu stjórnarinnar
bar ýmislegt á góma, einkum varðandi
útgáfu Náttúrufræðingsins, innheimtu
vangoldinna félagsgjalda og undirbúning
næstu útgáfu Flóru Islands. Fundarmenn
voru sammála um að hætt skyldi að senda
þeirn félögum Náttúrufræðinginn sem
skulduðu fleiri árgjöld en tvö, þangað til
þeir hefðu gert hreint fyrir sínum dyrum
og greitt þá árganga sem þeir væru þegar
búnir að fá, og var stjórninni falið að
framfylgja þessu.
Úr stjórn áttu að ganga Baldur Sveins-
son, meðstjórnandi og Sólmundur Ein-
Náttúrufræðingurinn, 49 (1), 1979
73