Náttúrufræðingurinn - 1979, Síða 80
arsson, ritari, og voru þeir báðir endur-
kosnir. Úr varastjórn áttu að ganga Berg-
þór Jóhannsson og Einar B. Pálsson og
voru þeir einnig endurkjörnir. Sömuleiðis
voru Eiríkur Einarsson og Magnús Sveins-
son, endurskoðendur, og Gestur Guðfinns-
son, varaendurskoðandi, endurkosnir.
Stjórnin flutti tillögu um hækkun fé-
iagsgjalds í kr. 3.500,00, því fyigja þyrfti
verðbólgunni ef takast ætti að halda fjár-
hag félagsins áfram í sæmilegu horfi. Til-
lagan var samþykkt samhljóða.
Frœðslusamkomur
A árinu voru haldnar sex fræðslusam-
komur eins og undanfarin ár, allar í stofu
nr. 201 í Arnagarði við Suðurgötu í
Reykjavík, og voru þar að vanda fluttir
fyrirlestrar um ýmis náttúrufræðileg efni.
Að öllunt fyrirlestrunum loknum urðu
almennar umræður um efni þeirra og oft
tóku margir til máls og fyrirlesarar þurftu
að svara fjölda fyrirspurna.
Aðsókn að fyrirlestrunum var töluvert
misjöfn, alls sóttu þá um 300 manns eða
50 að meðaltali.
Fyrirlestrar og efni fyrirleslra var sem
hér segir:
30. janúar:
Fyrirlesari: Eyjólfur Sæmundsson, efna-
verkfræðingur.
Efni: Mengunarvarnir á Islandi.
27. febrúar:
Fyrirlesari: Hörður Kristinsson, grasa-
fræðingur.
Efni: Gróður í beitarfriðuðum hólmum
á Auðkúluheiði.
3. april:
Fyrirlesari: Erling Ólafsson, skordýra-
fræðingur.
Efni: Um íslensk skordýr.
24. apríl:
Fyrirlesari: Páll Einarsson, jarðeðlis-
fræðingur.
Efni: Jarðskjálftaspár.
30. október:
Fyrirlesari: Ólafur Dýrmundsson, sauð-
fjárfræðingur.
Efni: Um kynþroska og fengitíma ís-
lenska sauðfjárins.
27. nóvember:
Fyrirlesari: Axel Björnsson, jarðeðlis-
fræðingur.
Efni: Um Kröfluelda.
Stjórnin vill, fyrir hönd félagsins, þakka
öllum fyrirlesurunum kærlega þann vel-
vilja sem þeir hafa sýnt með því að koma
og halda fræðsluerindi á samkomum þess.
Frœðsluferðir
Sumarið 1978 voru farnar fjórar fræðslu-
ferðir á vegum félagsins, þrjár eins dags
ferðir og ein þriggja daga ferð. Þátttak-
endur voru alls 107.
Sunnudaginn 21. mai var farin jarð-
fræðiferð um Reykjavík og nágrenni og
einkum skoðaðar menjar frá ísöldum og
hlýskeiðum milli þeirra. Leiðbeinandi var
Leifur Símonarson, jarðfræðingur. Þátt-
takendur voru 27.
Sunnudaginn 4. júni var farin ferð til
skoðunar á fjörulífi og fuglum á Garð-
skaga, í Ósum og Hafnabergi. Leiðbein-
andi var Arni Waag, kennari. Þátttakend-
ur voru 28.
Sunnudaginn 2. júli var farin ferð til
grasaskoðunar á Elliðavatns—Rauðhóla—
Hólmsársvæðinu í nágrenni Reykjavíkur.
Leiðbeinandi var Eyþór Einarsson, grasa-
fræðingur. Þátttakendur voru 12.
Föstudag 18. ágúst til sunnudags 20.
ágúst var svo „langa ferðin" farin til al-
hliða náttúruskoðunar um uppsveitir
Borgarfjarðar. Fyrsta daginn var farið um
Norðurárdal og þar m. a. skoðuð stein-
gervingalög við Brekkuá og flikrubergs-
lög í Hallarmúla. Síðan var ekið um Þver-
árhlíð, Stafholtstungur og Reykholtsdal
nteð viðkomu í Norðtungu og við Deildar-
tunguhver. Komið var að Húsafelli um
kvöldið og tjaldað Jrar til tveggja nátta.
Annan daginn voru Surtshellir og
Stefánshellir skoðaðir og síðan Draugagil
I norðurhlíðum Strútsins.
Síðasta daginn var gengið á Strútinn
74