Náttúrufræðingurinn - 1979, Side 81
um morguninn, því ekki viðraði nógu vel
til göngu á Eiríksjökul eins og til stóð.
Seinni part dagsins var ekið til baka, og
byrjað á því að skoða gamlan farveg Hvít-
ár í leiðinni, en síðan haldið um Kalda-
dal og Þingvelli' til Reykjavíkur. Leið-
beinendur voru Þorsteinn Þorsteinsson,
lífefnafræðingur, sem er fæddur og upp-
alinn á Húsafelli og þekkir þar hvern
stein og hverja þúfu, Haukur Jóhannsson,
jarðfræðingur og Eyþór Einarsson, grasa-
fræðingur. Þátttakendur voru 40.
Stjórnin þakkar kærlega öllum leiðbein-
endum vel unnin störf.
Ú tgáfustarfsemi
Af Náttúrufræðingnum, tímariti félags-
ins, komu út tvö tvöföld hefti á árinu,
alls 176 tvídálka síður: 3.-4. hefti 47. ár-
gangs sem er 80 síður og 1.—2. hefti 48.
árgangs upp á 96 síður, eða sem samsvar-
ar heilum árgangi. Ritstjóri Náttúrufræð-
ingsins var Kjartan Thors, jarðfræðingur.
Útgáfan er því hálfu ári á eftir og er
það síst lakari árangur en gengur og ger-
ist hjá mörgum félögum sem gefa út
tímarit, og hefur verið haldið í horfinu
frá í fyrra, en ekki enn tekist að vinna
upp að fullu þá seinkun á útgáfunni sem
orðin var fyrir þremur árum. Það eru þó
betri horfur á að þetta takist á yfirstand-
andi ári en nokkru sinni áður, jtar sem
unnið er að undirbúningi tvöfalds heftis
að sérstöku tilefni, jafnhliða undirbún-
ingi hefta með venjulegum hætti. Nátt-
úrufræðingurinn var eins og undanfarin
ár prentaður í Prentsmiðjunni Odda hf.
Af Félagsbréfi komu út fjögur tölublöð
3. árgangs. Fjölritun þess hefur frá upp-
hafi annast Sigurður Friðfinnsson.
Afgreiðslumaður Náttúrufræðingsins
var Stefán Stefánsson fyrrverandi bóksali
og sá hann einnig um innheimtu félags-
gjalda, eins og hann hefur gert um langt
árabil, og útsendingu Félagsbréfs.
Öllum þessum mönnum, svo og þeim
sem skrifað hafa greinar í Náttúrufræð-
inginn, J^akkar stjórnin einnig kærlega
fyrir hönd félagsins.
Fjárhagur
Árið 1978 voru félaginu veittar á fjár-
lögum kr. 200.000,00 til starfsemi sinnar,
og Jrakkar félagið Alþingi kærlega Jrenn-
an styrk. Samt sem áður eru það þó hin
árlegu félagsgjöld félaga sem einkum
standa undir rekstri félagsins og kostnaði
við útgáfu Náttúrufræðingsins og Félags-
bréfs, en nokkrar tekjur hafa einnig orðið
af sölu sérprentana greina úr Náttúru-
fræðingnum. Árgjaldið var kr. 2.500,00
og innheimtist allsæmilega, en þó eru
ennþá of margir sem trassa að greiða það
reglulega, og þó þetta hafi breyst töluvert
til batnaðar síðastliðin tvö ár, er enn að
þessu mikill bagi. Þannig skulda nú 89
félagar meira en eitt árgjald og allmargir
þeirra allt aftur til 1975. Þessir félagar
verða að bæta sitt ráð snarlega, ef Jreir
hafa hug á að vera áfram í félaginu. Sjái
hörðustu skuklararnir ekki að sér innan
tíðar er varla um annað að ræða en strika
Jrá út úr félaginu.
Fjárhagur félagsins er Jtó frekar góður,
eins og fram kemur af reikningum hér á
eftir, trúlega ekki síst vegna þess að ár-
gjaldið hefur verið hækkað nokkurn veg-
inn jafnhliða verðbólgunni undanfarin
ár, í stað þess að vera ári eða tveimur á
eftir.
Flóra íslands
Útgáfunefnd, en í henni eru grasafræð-
ingarnir Eyjrór Einarsson, Hörður Krist-
insson, Jóhann Pálsson og Steindór Stein-
dórsson, vann að undirbúningi næstu út-
gáfu á árinu. Á heilsdagsfundi á Akur-
eyri síðastliðið haust var fyrirkomulag út-
gáfunnar rætt nánar, endurskoðun lykla
og tegundalýsinga, skilgreining tegunda,
tegundir sem bæta Jjyrfti við eða fella
niður, slæðingar og meðhöndlun þeirra,
myndir og útgáfutími.
Ákveðið hefur verið að Menningarsjóð-
ur verði meðútgefandi Hins islenska nátt-
úrufræðifélags að Flóru, handrit verði
tilbúið í síðasta lagi haustið 1980 og bók-
in komi út 1981.
75