Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 17
2. mynd. Handskutullinn — The hand harpoon found in the sperm whale when caught
west of Iceland.
hið sæmilegasta, vindur ANA 5 og
alskýjað. Skipið var þá statt u.þ.b.
65°40’N, 28°45’V, rétt austan við
kjaldsjávarskilin; hitastig sjávar var
10.7°C.
Er hvalurinn var tekinn að síðu
skipsins og dráttarkeðjur settar á
sporð hans, kom í ljós eitthvað tor-
kennilegt standandi út úr hvalnum.
Við nánari athugun reyndist þetta
vera handskutull. Skutullinn var í
hægri hlið hvalsins um hálfan metra
framan við bakhnúfu og lá á kafi í
dýrinu, u.þ.b. 15 cm djúpt, og veit
aftur. Á skutulskaftinu var áfest
nælontó, um einn faðmur að lengd.
Því var haldið til haga, er skutullinn
var fjarlægður úr dýrinu".
Þann 4. ágúst kom Hvalur 8 með
feng sinn til Hvalfjarðar og reyndist
hvalurinn vera 46 feta langur (um 14
m) tarfur. Á 1. mynd er veiðistaður
hvalsins merktur með punkti.
HANDSKUTULLINN
Finnendur skutulsins gáfu greinar-
höfundi leyfi til að skoða gripinn nán-
ar. Skutullinn er hin mesta hagleiks-
srníði (sjá 2. mynd). Hann saman-
stendur af 98 mm þykku, 50.5 cm
löngu skafti með hreyfanlegum oddi á
öðrum endanum, en 13 cm löngum
járnhólki fyrir framlengingarskaft á
hinum endanunt. Skutuloddurinn (3.
mynd) er úr stáli og er 18.7 cnt langur,
3.6 cm þar sem hann er breiðastur og
1.5 cm þar sem hann er þykkastur.
Fremst er hann afar oddhvass og hefur
skarpa bitegg öðrum megin, þannig að
ætla má að hann smjúgi vel inn í hval-
inn við lag. Oddurinn er áfastur skaft-
inu með járnnagla, sem hann getur
snúist um. Þegar hvalur er skutlaður
er oddinum tyllt samsíða skaftinu með
þunnum trénagla, sem brotnar við
11