Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 21
Ingólfur Davíðsson: Flóðapuntur, gömul kornjurt Flóðapuntur (Glyceria fluitans (L.) R.Br.) er votlendisgras, algengt í lág- sveitum sunnanlands. Einnig er hann kallaður síkjakornpuntur. Hann hefur skriðulan jarðstöngul með renglum og uppsveigðum stráum (sjá 1. mynd). Blöðin eru breið, og slíðrin flatvaxin. Punturinn er langur og mjór með all- fjarstæðum greinum, sem eru upp- réttar og aðlægðar fyrir og eftir blómg- unina, en útstæðar um sjálfan blómg- unartímann í júní-júlí. Hæð er 50—100 cm, en oft Iiggur stráið hálfflatt og festir jafnvel rætur við liðina. Smáöxin eru einhliðstæð, frjóhnappar fjólublá- ir. Strengir með loftgöngum eru í blöð- unum, sem stundum fljóta á vatninu. Fremur súrefnislítið er niðri í vatninu og koma loftgöngin einnig að gagni við að flytja loft frá flotblöðunum niður 1. mynd. Flóðapuntur. Efst til vinstri: Smáax, séð frá tveim hliðum. (Úr Nordhag- en 1948. Norsk Flora). Náttúrufræöingurinn 54 (1), bls. 15—16, 1985 15

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.