Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 29
Tafla I byggir á upplýsingum frá Sigurði Þórarinssyni o. fl. (1959) og Guðrúnu Larsen og
Sigurði Þórarinssyni (1977). Hún sýnir stærð þeirra Heklugosa, sem telja má víst að hafi
valdið vikurhlaupum. Forsögulegu gosin taka hinum langt fram í stærð og umfangi. - Size
and age of eruptions producing fluvatile pumice flows.
Gjóskulag Aldur Vikurmagn Aðalstefna
ár km3 gjóskugeira
Tephra layer Age, years Vol. of pumice Strike of tephra sector
Hekla 1947 37 0.18 S
Hekla 1845 139 0.23 ASA
Hekla 1766 218 0.4 NNV
Hekla 1300 684 0.5 N
Hekla 1104 (Hl) 880 2.0 N
H3 2800° 12.0 NNA
HSv (Selsundsv.) 35002) <0.5 ?
H4 4000 9.0 NNA
1) Aldur byggður á greiningu með geislakolsaðferð (C14) óleiðréttur (miðað við helmingunartíma
5570 ár)
2) Áætlaður aldur.
Með ströndum þess hafa sest til vikur-
dyngjur, sem enn setja svip á jarðveg-
inn beggja vegna árinnar suður af Sól-
eyjarbakka og Birtingaholti. Megin-
hluti hlaupsins hefur síðan runnið
suður með Vörðufelli að austan og til
Hvítár milli bæjanna Fjalls og Út-
verka, en álma úr því virðist hafa farið
norðan Vörðufells til Hvítár hjá Iðu.
Ástæðan fyrir því að hlaupið fór
austan Vörðufells er annaðhvort sú,
að það hafi ekki náð nægilegri framrás
um þrengslin í Hvítá hjá Iðu og hluti
þess því borist fram austan Vörðufells
eða að farvegur Stóru-Laxár hafi legið
austan fellsins á þessum tíma og
flaumurinn fylgt honum að mestu. Ef
svo hefur verið hefur hlaupsetið hrak-
ið ána úr þeim farvegi og sveigt hana
þvert af leið sinni til vesturs og
norðurs um hið víðáttumikla flatlendi
hjá Iðu. í þurrum farveginum austan
Vörðufells, þar sem vikurrastirnar
hafa legið eftir flóðið, hefur hafist
mikill sandblástur sem skóf vikrinum
saman í öldur. Þá mynduðust m.a.
Þorleifshólar sem getið er um hér að
framan.
Á síðari öldum hefur aftur orðið
allmikill uppblástur, einkum milli
Sandlækjar og Vörðufells. Mestur hef-
ur uppblásturinn orðið í flóðsetunum,
svo að jarðvegur á þessum slóðum er
mjög vikurríkur.
H4. í H4 gosinu virðist hafa orðið
svipuð atburðarás og lýst er hér að
framan. Ummerki hlaupsins verða
rakin upp fyrir eyðibýlið Merkihvol
við Ytri-Rangá og upp með Hraun-
23