Náttúrufræðingurinn - 1986, Side 14
honum 20 cm undir yfirborði (4. mynd
nr. 2). Suðaustan Rimaskarðs tekur á
ný við mói, sem teygir sig upp á Torfa-
staðaheiði. Þar er garðurinn jafn hár
umhverfinu, en er vel afmarkaður
með rásum beggja megin. Er nær
dregur Torfastaðaheiði, verða rásirnar
ógreinilegri og eru nánast horfnar þeg-
ar upp á heiðina kemur. Ofan af
Torfastaðaheiði og niður undir tún í
Miklaholti eru nú örfoka melar, er
nefnast Hámelar. Garðurinn hefur lík-
lega Iegið þvert yfir melana, beina leið
í Þrælastein. Engin merki sjást nú um
garðinn á melunum, enda allur jarð-
vegur fokinn burt.
Sumarið 1893 lýsir Brynjúlfur Jóns-
son (1894, bls. 2) þessum hluta garðs-
ins svo:
„Þar fyrir ofan og vestan (þ.e. Þræla-
stein — innskot höf.) er mikill partur af
holtinu nú upp blásinn. En austur að
þeim uppblástri utan frá Brúará sjer
enn fyrir þráðbeinum garði afarforn-
um: hann er á þurrlendi en þó svo niður
sokkinn, að hann er ekki hærri en land-
ið til hliða, en er þó vel afmarkaður og
er nálega 2 fðm. á breidd (þykkt).
Hann er nú kallaður Þrælagarður. Þess
nær sem dregur uppblæstrinum, þess
óglöggari verður hann, sem von er, unz
hann hverfur alveg. Ekki sjest hann
þar, sem blásið er, því grjót hefir ekki
verið haft í hann.'1
Ofangreind lýsing kemur vel heim
og saman við garðinn eins og hann
lítur út í dag. Brynjúlfur telur garðinn
reyndar hvergi vera hærri en landið til
hliðar. Okkur finnst líklegt, að hann
hafi horft eftir garðinum endilöngum,
ofan af Torfastaðaheiði, er hann álykt-
aði svo. Þaðan er ekki mögulegt að
greina hækkunina á garðinum við
Rimaskarð. Auk þess er það frekar
stuttur kafli, þar sem garðurinn er
hærri en umhverfið. I vestnorðvestur
frá Þrælasteini liggur nú grjótgarður.
Garður þessi mun vera sandvarnar-
garður frá síðustu öld og er alls óvið-
komandi Þrælagarði, þó að hann liggi
upp að Þrælasteini.
Þrælasteinn er rétt ofan túns í
Miklaholti. Steinninn er mjög áber-
andi vegna stærðar sinnar, því að ann-
að eins bjarg er hvergi að finna í ná-
grenninu. Steinninn er um 2,5 m á hlið.
Sunnan við Þrælastein tekur við
mýri og vottar ekki fyrir garðinum
þar. Haustið 1984 voru grafnir þar
tveir skurðir. í þeim báðum má sjá
þversnið í gegnum garðinn (4. mynd
nr. 3). Garðurinn er mjög sokkinn, því
að í nyrðri skurðinum eru 42 cm af
jarðvegi ofan á honum.
Nú hverfur garðurinn algjörlega á
um 1600 m kafla og finnst ekki aftur
fyrr en niðri í Klukknagilsbotnum.
Þessi kafli er nú framræst mýri, svo
eðlilegt er, að garðurinn standi ekki
upp úr. Á loftmyndum, sem teknar
voru í september 1945 (Army Map
Service 1945), sést móta fyrir næstum
beinni línu frá Klukknagilsbotnum að
heimreið í Miklaholti. Þessi lína er að
öllum líkindum garðurinn, en þar hef-
ur nú verið grafinn merkjaskurður
milli Torfastaða og Miklaholts. Skurð-
urinn hefur því líklega verið grafinn
eftir garðinum endilöngum eða rétt
austan við hann. Garðurinn finnst
mjög sunnarlega í þessum skurði, og
töldum við okkur finna hann í báðum
skurðbökkum. Hann getur því hugsan-
lega lepið undir vestari skurðruðning-
num. I Gilbotnum breytir garðurinn
um stefnu og liggur nú í suðaustur eftir
framræstri mýri og sést ekki á yfir-
borði. Hann finnst í tveimur skurðum
er liggja þvert á hann og í þeim eystri
er 32 cm þykkur jarðvegur ofan á hon-
um (4. mynd nr. 4). Suðaustan þess
skurðar sést móta fyrir garðinum á
stuttum kafla, sem aðeins hærri þúfum
í mýrinni, með rásum beggja megin.
Garðurinn hverfur aftur og finnst ekki
220