Náttúrufræðingurinn - 1986, Qupperneq 31
2. mynd. Þversnið af Arenal vestur-austur. Gígarnir 3 eru frá síðasta gosi. Gígur nr. 1 frá
29.7.1978.
skyggni má af toppi Irazu sjá
heimshöfin tvö Atlantshaf og Kyrra-
haf, en fremur sjaldan mun að vísu
loftið svo tært vera, einkum þó austan
megin þar sem raki er meiri. Prýðis
góður akvegur er alla leið upp að gíga-
svæði fjallsins, enda er efri hluti þess
nú þjóðgarður.
Skemmtilegt er að veita athygli
breytingum á gróðri eftir því sem ofar
kemur í fjallið. í um 3000 m hæð fara
að sjást jurtir, sem ekki koma fyrir í
dölunum eða niðri á láglendi, en sem
eru kunnar hverjum norðurlandabúa
svo sem hvítsmári og undafíflar.
Irazu er hluti af miklum eldfjalla-
klasa sem er um 50 km í þvermál og
jafnan er nefndur Irazu-Turrialba.
Samanstendur hann af tveim risa-
vöxnum eldkeilum (3.mynd). Turri-
alba sem er aðeins 100 m lægri en
Irazu, hefur ekki gosið eftir að Evróp-
umenn komu til landsins. Gufuaugu
eru í aðal gígnum, hiti 80-90°C og
brennisteinn fellur þar út. Þangað er
nú kominn akvegur.
Eldvirkni
Fyrstu heimildir um gos í Irazu eru
frá árinu 1732. Þann 16. feb. það ár
hófst gos í fjallinu og stóð það til í
desember sama ár. Svo virðist sem
öskufall hafi verið mikið. Næst verða
aftur öskugos 1821 og 1847. Eftir það
verður algert hlé þar til 1917. Fremur
litlar upplýsingar liggja fyrir um þessi
gos, en í október 1930 verður stórgos
með miklu öskufalli, sem náði til höf-
uðborgarinnar San José í rösklega 35
km fjarlægð frá gígnum. Eftir að hafa
haft hægt um sig í 22 ár, vaknaði risinn
aftur þann 13. mars 1963, að sögn
sama dag og forseti Bandaríkjanna
heimsótti landið. Segja má að eldfjall-
ið hafi vaknað með andfælum, gífur-
legum sprengingum og grjótkasti, sem
eyðilagði byggingar í nágrenni gígsins.
Tveim eða þrem dögum síðar varð
mikið öskugos. Aska féll þétt yfir ná-
grennið og í höfuðborginni varð að
kveikja ljós um miðjan dag. Öskufalls
varð vart við Nicaraguavatn í um 200
km fjarlægð. Talið er að mokað hafi
verið 26000 tonnum af ösku af götum
San José. í þessu gosi stíflaðist Rio
Reventado af öskufalli, bæði því sem
úr lofti féll og eins af öskuskriðum úr
snarbröttum gilvöngum. Við þetta
myndaðist uppistöðulón. Þegar stíflan
brast varð feikna flóð, sem æddi niður
árfarveginn, reif með sér allt sem fyrir
237