Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 6
100
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
kols undan Laxárhrauni yngra og tvö mósýnishorn norðan úr
Eyjafirði til rannsóknarstofu við Yale háskóla fyrir milligöngu
prófessors R. F. Flints, Jiins kunna kvarterjarðfræðings, sem þá
var formaður þeirrar bandarísku sérfræðinganefndar, er valdi sýnis-
Jtorn frá ýmsum löndum til aldursákvörðunar. Árið eftir sendi Guð-
mundur Kjartansson sýnishorn af kolinu úr Laxárgljúfri til rann-
sóknarstofu við ManitóbaJiáskólann í Winnipeg, fyrir milligöngu
prófessors Áskels Löve. Verður vikið að þessum aldursákvörðunum
hér á eftir.
Á þeim árum, sem síðan eru liðin, liafa íslenzkir kvarterjarðfræð-
ingar fengið allmörg sýnishorn aldursákvörðuð erlendis og notið
við það góðrar fyrirgreiðslu margra rannsóknastofnana, sem skylt
er að þakka.
1. mynd. C14-aldursákvarðanir á fslandi. Staðirnir eru tölusettir eins og i
eftirfarandi greinum. 1: Elliðaár, 2: Reykjavíkurflugvöllur, 3: Seltjörn, 4: Grá-
brókarhraun (Hreðavatn), 5—6: Moldhaugar, 7: Bandagerði, 8: L.axá, 9: Aðalból,
10: Stokksnes, 11: Skeiðarársandur, 12: Landbrotshraun, 13: Krókslón, 14—15:
Rangárbotnar, 16: Þjórsárbrú, 17: Hellisholtalækur, 18: Brúará (Spóastaðir),
19: Stokkseyri, 20: Sog, 21: Nesjahraun.
Radiocarbon datings in Iceland. Places are numbered as in the following
articles.