Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
107
í stafrófsröð eftir aldri; Z er yngst allra Tungnárhrauna, en Y er „Stífluhraunið",
sem myndaði lónið. Staðurinn, þar sem sýnishorn var tekið til C14-greiningar,
er merktur með stjörnu.
Map of the extinct lava-dammed lake „Krókslón— X, Y and Z are three
different Tungná Lavas, of which X is the oldest and Z the youngest, while
Y is the flow that dammed up the lake. The place where organic matter was
samþled for C14 analysis is marked with an asterisk. — Lónsstæði = Area
formerly covered by the lava-dammed lake. Strandlína == Shore-line. Hraun-
brún = Lava-edge. Hraun = Postglacial lava.
lón. Tungná rann í suðausturenda þess, en út úr vesturendanum
yfir hraunstífluna sunnan við Sigöldu. Lónið var um 4 km2 að
flatarmáli og mesta dýpi í því 30 m. Nú er það horfið, en strand-
línan umhverfis lónsstæðið er glögg og liggur í 500 m hæð y. s.
í þeirri hæð hefur vatnsborðið legið nokkurn veginn stöðugt allan
þann tíma, sem afrennsli lónsins var yfir „Stífluhraunið“ sunnan
við Sigöldu, því að Tungná hefur lítið sem ekkert unnizt að grafa
sig niður í hraunklöppina. En á meðan hefur hún því sem næst