Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1964, Page 16

Náttúrufræðingurinn - 1964, Page 16
110 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Kolaðar jurtaleifar undir Þingvallahrauni (20) 9130 ± 260 ár (W-1912) Farvegur Sogsins úr Þingvallavatni niður í Úlfljótsvatn er gljúfur meðfram hraunjaðri, og er hraunið í austurbakkanum. Þetta er fremsta tota Þingvallahrauns. Upptök þess eru í gossprungu, um 17 km langri, sem liggur í stefnu NA—SV skammt fyrir austan Hrafnabjörg og Tindaskaga. En ekki skal fullyrt, að allt það, sem hér er kallað Þingvallahraun, sé upp komið í einu gosi. Efsti kafli Sogsgilsins, fáein hundruð metra niður frá útfallinu, er grafinn vel niður úr hrauninu, svo að undirlag þess kemur í ljós. Er það mest sendinn leirsteinn, grár að lit með miklum völ- um og hnullungum — bersýnilega jökulruðningur að uppruna. En á mótum þessa ruðnings við hraunið, sem yfir liggur, getur að líta þá mold, sem Jónas Hallgrímsson kvað um: „Enginn leit þá maður moldu, / móðu steins er undir býr.“ Þunnt er þetta moldarlag, varla nokkurs staðar meira en um 20 cm, og er þá með talinn neðri hluti þess, sem er að vísu með moldar lit, en að efni til sendinn leir með steinvölum og mun raunar vera veðrað yfirborðslag jökulruðningsins. En efri hlutinn, upp í 10 cm þykkur, er steinlaus og virðist vera venjuleg fokmold. Þetta moldarlag er brúnt að lit, en þó víðast með kolsvartri rönd allra efst. Á kafla í gljúfurveggnum um 100—150 m neðan við nýja stíflugarðinn fyrir útfall Sogsins er þessi svarta rönd lítt eða ekki sundur slitin, en mesta þykkt hennar, sem ég hef fundið, þó aðeins 8 cm. Svarti liturinn stafar af jurtaleifum, sem hafa kolazt af hitanum, þegar glóandi hraunkvikan rann þarna yfir. Heilleg- ustu leifarnar, sem greina má berum augum, eru mjög grannir og brothættir stönglar, harla torkennilegir orðnir af að sviðna, breyt- ast í kol og molna undir fargi hraunsins. Moldarlagið liggur fáeina metra yfir yfirborði Þingvallavatns og í h. u. b. 106 m hæð y. s. Það er örugglega ofan efstu sjávarmarka, sem hér liggja mun lægra en austur við Þjórsá. Þegar ég fann þessar kynlegu jurtaleifar, 19. júlí 1941, þóttist ég mega greina lyngstöngla meðal þeirra, eins og ég hef áður skýrt frá (Guðm. Kjartansson 1943). En í stærra og betra sýnishorni, sem ég náði 25. júlí 1957 og sendi hluta af til C14-aldursákvörðunar í Washington, fann ég engar einhlítar leifar af lyngi og hef síðan

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.