Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
115
milli þess og kolalagsins við Laxárgljúfur og með hliðsjón af því,
sem ég þá þóttist geta reiknað út um hraða þykknunar þess háttar
moldarlags, taldi ég aldur kolalagsins 500 árum minni en aldur
H::, þ. e. 1800—2300 ár eða 2050 ± 250 ár. Eru þessar aldursákvarð-
anir birtar í ritgerðinni Laxárgljúfur and Laxárhraun (Sig Þór-
arinsson 1951, bls. 11 og 40).
Sýnishorn af koli undan Laxárhraunum sendi ég til Yale-háskóla
vorið 1951, svo sem fyrr getur, og var það aldursákvarðað í Geo-
chronometric Laboratory (sýnishorn Y-87). Til frekara öryggis sendi
ég síðan annað sýnishorn til Kulstof 14 Daterings-laboratoriet í
Kaupmannahöfn (sýnishorn K-139). Ég vissi þá ekki, að Guðmund-
ur Kjartansson liafði einnig tekið sýnishorn af þessu koli og sent
til Winnipeg til aldursákvörðunar.
Þetta kolalag hefur því verið aldursákvarðað á þrem stöðum og
koma aldursákvarðanirnar vel heim hver við aðra og við þann
aldur, sem fyrirfram var áætlaður samkvæmt öskutímatalinu.
Samkvæmt þessu er Laxárhraun yngra um 2000 ára gamalt. Sama
aldurs eru Skéitustaðagígar og aðrar gervigígaþyrpingar í Mývatns-
sveit, sem allar eru á þessu hrauni. Þau kísilgúr lög, sem er að
finna á botni Mývatns sunnan Neslanda, liafa einnig myndazt eftir
að Laxárhraun yngra brann, þ. e. á síðustu 2000 árum.
Niðurstöður aldursákvarðananna liafa verið notaðar eða þeirra
getið í eftirfarandi ritum (sbr. ritskrá í lok þessarar ritgerðar): Sig.
Þórarinsson 1954a, bls. 67—68; 1954b, bls. 54.
Mór rétt undir ljósa Hekluöskulaginu Hs í mýrarskurði
við Bandagerði í Glæsibæjarhreppi (7)
2720 ± 130 ár (Y-85)
Viðarkol í ljósa vikurlaginu H:: í Rangárbotnum (14)
2820 ± 70 ár (St.-813)
Flestar þær C14-aldursákvarðanir, sem ég hef fengið gerðar, hafa
verið tengdar öskutímatali mínu eða tefrókronólógíu. Með því að
rekja útbreiðslu öskulaga frá sögulegum tíma hefur tekizt að finna
öskulög úr allmörgum gosum, sem vitað er um aldur á, t. d. Lleklu-
lagið úr gosinu 1104 (Hi) og öskulagið úr Öræfajökulsgosinu 1362.
En forsöguleg öskulög verða ekki aldursákvörðuð með hjálp skráðra