Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 25

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 25
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN 119 gosi. Segja má, að C9 * * * * 14-aldursákvörðuninni beri vel saman við þá fyrri og að þær komi furðu vel lieim við aldursákvörðun mína samkvæmt öskutímatalinu. En það sannar um leið, að hinu mikla hlýviðrisskeiði postglasíaltímans lýkur um sama leyti á íslandi og í Skandinavíu, í byrjun járnaldar, um 600 árum f. Kr. Öskulagið H:s þekur um 80 000 ferknr af íslandi eða 4/5 hluta landsins og er því sérstaklega mikilsvert að hafa fengið það aldurs- ákvarðað svo viðunandi öruggt má teljast. Sjá um þessar aldursákvarðanir ennfremur Askelsson et al. 1960, bls. 55—60. Preston et al. 1955. Sig. Þórarinsson: 1955, bls. 179— 180; 1958a, bls. 48-49 og 70-71; 1960, bls. 154-155; 1961, bls. 26 og áfram; 1962a, bls. 129-130; 1962b. Mór rétt undir ljósa Hekluöskulaginu H ( í mýrarskurði við Bandagerði í Glæsibæjarhreppi (7) 4200 ± 150 ár (K-120) 3850 ± 150 ár (K-120) Meðaltal 4030 ± 120 ár Það Ijósa Hekluöskulag, sem ég hef nefnt Ht, er næst mesta öskulag, sem myndazt hefur í Heklugosi, og er útbreiðsla þess svipuð og útbreiðsla Hs. í jarðvegssniðun norðanlands eru þessi tvö lög mest áberandi allra öskulaga, og eru því víða nefnd „efra ljósa lagið“ og „neðra Ijósa lagið“. Á austurhluta Norðurlands og á Austurlandi er það neðra auðþekkt frá því efra á því, að efri hluti neðra lagsins er rniklu dekkri en neðri hluti þess, en efra lagið er jafnlitt allt í gegn. Sýnishornið var tekið í sama rnýrar- sniði og Nr. 7, 0.0—0.5 crn undir öskulaginu. í ritgerðinni Laxár- gljúfur and Laxárhraun áætlaði ég aldur Hi 4500—5000 ár (bls. 9. mynd. Fjögur jarðvegssnið, sem sýnishorn hafa verið tekin úr til aldurs- ákvarðana. 1: Starmosatorf, lítt fúið. 2: Sarna, cn allfúið. 3: Starmosatorf með birkileifum. 4: Birkilurkar. 5: Eðjuborinn mór. 6: Eðja. 7: Lössjarðvegur. 8: Botnurð. 9: Möl. 10: IJökk öskulög. 11: Brún öskulög. 12: Ljós öskulög. 13: Vikurblandinn fokjarðvegur. 14: Viðarkol. Four C14 dnted soil sections. 1: Carex moss peat, slightly decomposed. 2: Dilto, highly decomposed. 3: Birch moss peat. 4: Birch stumps. 5: Mud peat. 6: Mud. 7: Loessial soil. 8: Moraine. 9: Gravel. 10: Tephra layers, black. 11: Ditto, brown. 12: Dilto, light. 13: Loessial soil and tephra. 14: Charcoal.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.