Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 25
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN
119
gosi. Segja má, að C9 * * * * 14-aldursákvörðuninni beri vel saman við þá
fyrri og að þær komi furðu vel lieim við aldursákvörðun mína
samkvæmt öskutímatalinu. En það sannar um leið, að hinu mikla
hlýviðrisskeiði postglasíaltímans lýkur um sama leyti á íslandi og
í Skandinavíu, í byrjun járnaldar, um 600 árum f. Kr.
Öskulagið H:s þekur um 80 000 ferknr af íslandi eða 4/5 hluta
landsins og er því sérstaklega mikilsvert að hafa fengið það aldurs-
ákvarðað svo viðunandi öruggt má teljast.
Sjá um þessar aldursákvarðanir ennfremur Askelsson et al. 1960,
bls. 55—60. Preston et al. 1955. Sig. Þórarinsson: 1955, bls. 179—
180; 1958a, bls. 48-49 og 70-71; 1960, bls. 154-155; 1961, bls.
26 og áfram; 1962a, bls. 129-130; 1962b.
Mór rétt undir ljósa Hekluöskulaginu H ( í mýrarskurði
við Bandagerði í Glæsibæjarhreppi (7)
4200 ± 150 ár (K-120)
3850 ± 150 ár (K-120)
Meðaltal 4030 ± 120 ár
Það Ijósa Hekluöskulag, sem ég hef nefnt Ht, er næst mesta
öskulag, sem myndazt hefur í Heklugosi, og er útbreiðsla þess
svipuð og útbreiðsla Hs. í jarðvegssniðun norðanlands eru þessi
tvö lög mest áberandi allra öskulaga, og eru því víða nefnd „efra
ljósa lagið“ og „neðra Ijósa lagið“. Á austurhluta Norðurlands og
á Austurlandi er það neðra auðþekkt frá því efra á því, að efri
hluti neðra lagsins er rniklu dekkri en neðri hluti þess, en efra
lagið er jafnlitt allt í gegn. Sýnishornið var tekið í sama rnýrar-
sniði og Nr. 7, 0.0—0.5 crn undir öskulaginu. í ritgerðinni Laxár-
gljúfur and Laxárhraun áætlaði ég aldur Hi 4500—5000 ár (bls.
9. mynd. Fjögur jarðvegssnið, sem sýnishorn hafa verið tekin úr til aldurs-
ákvarðana. 1: Starmosatorf, lítt fúið. 2: Sarna, cn allfúið. 3: Starmosatorf með
birkileifum. 4: Birkilurkar. 5: Eðjuborinn mór. 6: Eðja. 7: Lössjarðvegur. 8:
Botnurð. 9: Möl. 10: IJökk öskulög. 11: Brún öskulög. 12: Ljós öskulög. 13:
Vikurblandinn fokjarðvegur. 14: Viðarkol.
Four C14 dnted soil sections. 1: Carex moss peat, slightly decomposed. 2: Dilto,
highly decomposed. 3: Birch moss peat. 4: Birch stumps. 5: Mud peat. 6: Mud.
7: Loessial soil. 8: Moraine. 9: Gravel. 10: Tephra layers, black. 11: Ditto,
brown. 12: Dilto, light. 13: Loessial soil and tephra. 14: Charcoal.