Náttúrufræðingurinn - 1964, Síða 26
120
NÁTTÚRUFRÆÐINGURIN N
11), en í ritgerðinni The Tephra-fall from Hekla liafði ég lækkað
aldurinn niður í „ab. 4000 years“ (Sig Þórarinsson 1954a, bls. 44).
Sýnishornið var tekið árið 1951 og sent til Kaupmannahafnar, en
aldursákvörðunin gerð þar 1954 og kemur hún mæta vel heim við
þá aldursákvörðun, sem ég byggði á öskutímatalinu. Þess má geta,
að C14 aldursákvörðunin er upphaflega gefin upp 200 árum lægri
en nú, en leiðrétt síðar með tilliti til þess „Suess effect" sem að
var vikið í inngangsorðum þessarar ritgerðar. Þess er einnig að
geta, að hluti af sama mósýnishorni var aldursákvarðaður í Yale
1954 (Y-86). Sii ákvörðun mistókst að nokkru, vegna truflana frá
atómsprengium Bandaríkjamanna á Kyrrahafi, en samkvæmt þess-
ari aldursákvörðun var aldur sýnishornanna 4100 ± 450 ár. Til
gamans má nefna, að ég sendi sýnishorn samtímis til Hafnar og
Yale, því mér þótti öryggi í því að fá aldursákvörðun á báðum
stöðum. í bréfi til forstjóra rannsóknarstofnunar í Höfn lét ég þess
getið, að ég hefði einnig sent sýnishorn til Yale, en mér þætti valt
að treysta ákvörðun þeirra vestra, vegna þess að þeir væru alltaf
með þessar andskotans atómsprengjur. Til Yale skrifaði ég að ég
hefði sent sýnishorn til Hafnar, en þar sem rannsóknarstofan þar
væri ný af nálinni og þeir, sem þar ynnu að aldursákvörðunum,
væru enn viðvaningar samanborið við þá Yale-menn, vildi ég einn-
ig fá sýnishornið aldursákvarðað í Yale. Ég man, að ég hafði orð
á því við ritara minn, er ég l'ékk henni bréfin til vélritunar, að
það væri gott að móttakendur sæju ekki bréf hvors annars. En 10
dögum seinna fékk ég endursent bréf það, sem fór til Yale með
þeirri athugasemd að „I suppose that this letter was not meant to
be read by us“. Ég hafði sem sé lagt Yale bréfið í Hafnar umslagið
og ölugt. Hvað þeir í Höfn hugsuðu, er þeir fengu bréfið, hef ég
ekki frétt, en báðir aðilar voru svo elskulegir að aldursákvarða
sýnishornið mér að kostnaðarlausu.
Öskulagið II4 liggur milli Þjórsárhrauna við Þjófafoss, en Laxár-
hraun eldra, sem komið er úr Ketildyngju og flætt hefur norður
yfir Mývatnssveit og síðan norður Laxárdal og Aðaldal liggur
milli öskulaganna H3 og H4.
Sjá ennfremur eftirfarandi ritgerðir: Áskelsson et. al. 1960, bls.
55—60. Sig. Þórarinsson 1954a, bls. 68; 1955, bls. 179—180; 1958a,
bls. 48—49 og 70—71; 1961, bls. 26 og áfram. 1962b. Tauber, H.
1960.