Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1964, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 1964, Page 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 123 skoðun, að það væri frá elzta Heklugosinu síðan sögur hófust, gos- inu 1104, en það lag hef ég kallað Hx og rakið víða um Norður- land. Það sem gegn þessu mælti var það, að þetta lag er þykkast vestur í Húnavatnssýslum, en þynnist mjög er kemur austur í Þing- eyjarsýslu og er greinilega þynnra þar en þetta lag á Jökuldalnum. í ritgerð minni The Öræfajökull Eruption of 1362, þar sem birt eru nokkur jarðvegssnið með þessu öskulagi, skrifaði ég: „Það virð- ist líklegt, enda þótt það sé ekki að fullu sannað, að þetta sé sama lagið og Vllb og því komið frá Grákollu. Því hefi ég kallað það G á jarðvegssniðum mínum“ (Sig. Þórarinsson 1958, bls. 50). Grákolla er gígur rétt austan Frostastaðavatns og frá honum taldi ég í þann tíð öskulag það, sem ég nefndi Vllb í doktorsritgerð minni, en það lag er frá allra fyrstu tíð norræns landnáms á íslandi eða nokkru eldra. Sjálfur hef ég talið það frá um 850. Síðari rann- sóknir mínar á svæðinu austur af Heklu hafa leitt í ljós, að lagið er ekki úr Grákollu, en líklegast frá Hrafntinnuhraunssvæðinu, en Grákollulagið er nokkru eldra og örugglega frá því fyrir landnám. Mér þótti því fréttin um beinafundinn ærið forvitnileg. Var minn góði sveitungi, Benedikt Gíslason, nú búinn að fá sönnun fyrir skoðunum sínum um landnám á íslandi löngu fyrir hingaðkomu norrænna víkinga? Athuganir mínar á Þórisstöðum staðfestu í öllu það sem sá glöggi og athuguli maður, Aðalsteinn bóndi, hafði sagt. I.jósa lagið „G“, um y4 cm þykkt, var þarna vissulega óhreyft, um 14 cm yfir beinahrúgunni og var eitt örþunnt svart öskulag milli beina- hrúgunnar og ,,G“ (sjá 11. mynd). Þetta varð til þess að ég ferðaðist haustið 1962 um Brúaröræfi til að kanna nánar útbreiðslu öskulagsins ,,G“. Átti ég það hrein- dýraskyttum að þakka, prófessorunum Snorra Hallgrímssyni og Kristni Stefánssyni að ég komst í þessa ánægjulegu reisu, sem fræddi mig um margt og sannfærði mig um að „G“ væri raunverulega sama öskulagið og Hx. í bakka rétt suðvestan við Vaðbrekku liggur öskulagið ,,G“ á mó. Sýnishorn af þessum mó hið næsta öskulaginu tók ég vorið 1962 og l'yrir milligöngu Þorleifs Einarssonar jarðfræðings var það sent til aldursákvörðunar í Þrándheimi, þar sem það var aldurs- ákvarðað 1963. Aldursákvörðunin styður mjög þá niðurstöðu að ljósa lagið „G“ sé úr Heklugosinu 1104 (uppgefinn aldur er mið-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.