Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 35
N Á'T T Ú R U F R Æ ÐIN G U RIN N
129
ustu ísöld huldi þykkur jökulskjöldur meginhluta íslands. Farg
jökulsins jrrýsti landinu allmikið niður og þar mest, sem jökul-
skjöldurinn var þykkastur. í öðru lagi er þess að geta, að á ís-
öldum jökultímans var mikið aí' vatnsbirgðum jarðarinnar bundið í
víðáttumiklum og þykkum meginlandsjöklum, sem á liámarki síð-
ustu ísaldar huldu 1/4 landjarðarinnar. í dag þekja jöklar 1/10
landjarðarinnar. Allt það vatn, sem bundið var í jöklum, var komið
úr heimshöfunum, svo að sjávarborð hafanna mun hafa verið 100—
150 m lægra á hámarki síðustu ísaldar en í dag. Þegar jöklar voru
hvað stærstir á síðustu ísöld, mun því sá hluti landgrunnsins, sem
liggur ofan 100 m dýptarlínu, hafa verið þurrlendi, að vísu víðast
hulið jöklum, sem kelfdu í sjó fram.
Er leið á síðustu ísöld, fór loftslag stöðugt hlýnandi og rýrnuðu
jöklar því mjög. Af völdum hins mikla leysingarvatns, sem bættist
í heimshöfin, hækkaði sjávarborðið mjög ört, en jafnframt tók
landið að rísa, er jökulfarginu létti. Hækkun sjávarborðsins var
lengi vel hraðari en lyfting landsins, enda eru hreyfingar jarðskorp-
unnar alla jafna fremur hægar. Sjórinn fylgdi því hörfandi jöklun-
um fast eftir og flæddi fyrst yfir landgrunnsspilduna og síðan lág-
lendið. Er lyfting landsins og hækkun sjávarborðsins voru orðnar
jafnar, munu fjörumörk hafa verið hvað hæst liér á landi.
Jafnræði hreyfinganna mun hafa staðið alllangan tíma svo sem
greinileg brimþrep og þykk sjávarset sýna. Jafnvægi þetta raskaðist,
er jöklar nálguðust þá stærð, sem þeir hafa nú, og hækkun sjávar-
borðsins linnti, en lyfting landsins hélt áfram.
Eins og áður getur þrýsti jökullinn landinu mest niður, þar sem
hann var þykkastur. Landið reis því meira inn til dala en á nesjum
og skögum. Jökullinn hafði verið þykkastur um suðurhluta lands-
ins (Guðmundur Kjartansson 1964). Þannig eru hæstu fjörumörk
13. mynd. Kort, sem sýnir hæð hæstu fjörumarka og svæði, sem voru undir sjó í
lok jökultímans (svart). Einnig er sýnd lega jaðars meginjökulsins á Búðaskeiðinu:
1: Svæði undir sjó á síðjökultíma. 2: Jökuljaðar á Búðaskeiðinu. 3: Lega jaðars
jökulsins á Búðaskeiðinu óviss. 4: Núverandi jöklar. 5: Hæð hæstu fjörumarka
yfir núverandi sjávarmáli. — Kortið er samið í samræmi við ýmsar heimildir.
A compiled mnp showing tlie highest shore lines and areas submerged in Late
Glacial Times in Iceland: I: Submerged areas. 2: Margin of liudi stage glacier.
3: Uncertain margins of Budi slage glacier. 4: Present glaciers. 5: Height of
highest shore lines.