Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 38
132
NÁTTÚRUFRÆÐINGU RINN
allt austur að Hauksstöðum á Jökuldal. Malarhjallar í 52 m hæð
í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu og hæstu fjörumörk víðar í þess-
um landshluta munu svipuð að aldri og jökulgarðar Hólkotsstigs-
ins (Sigurður Þórarinsson 1951).
Guðmundur Kjartansson og Sigurður Þórarinsson telja báðir,
að jökulgarðar Búða- og Hólkotsstigsins, sem hér á eftir verður
nefnt Búðastigið, séu svipaðir að aldri og jökulgarðar miklir, sem
rekja má frá sunnanverðu Finnlandi (Salpausselká), um Mið-Sví-
þjóð, yfir þveran Oslófjörð (Raene) og suður með honum og síðan
vestanfjalls í Noregi a. m. k. norður til Harðangursfjarðar. Þessir
miklu jökulgarðar ýttust upp samkvæmt sænsk-finnska hvarflaga-
tímatalinu, frjórannsóknum og C14-aldursákvörðunum á hinu svo-
kallaða yngra holtasóleyjaskeiði fyrir 11000—10150 árum. Þegar
jökullinn hörfaði lrá þessum jökulgörðum fyrir 10150 árum er
almennt talið, að jökultíma ljúki og nútími hefjist.
Eins og getið er um í inngangi þessa greinaflokks, eru um 20
ár síðan byrjað var að gera aldursákvarðanir á lífrænum leifum,
einkum jurtaleifum, með C14-aðferðinni. Nokkru síðar var tekið
að gera tilraunir til slíkra aldursákvarðana á skeljum og kuðungum.
Kalkkirtlar lindýra nota koltvíildi (koldíoxyd, CO„) við gerð
skeljanna.
Árið 1962 voru fyrstu sjóskeljarnar úr hinum forna sjávarleir
sendar héðan til aldursákvörðunar til dr. R. Nydal við Laboratoriet
for Radiologisk Datering við tækniháskólann í Þrándheimi. Skelj-
arnar, sem sendar voru, höfðu verið teknar í norðurbakka Brúarár,
skammt ofan brúarinnar við Spóastaði. Sá staður er í 55 m hæð
og um 40 km frá sjó. Aldursákvörðunin var gerð á skeljabrotum
af kræklingi, bergbúa og rataskel. Aldur þessara skelja reyndist
vera 9930 ± 190 (T-362).
Vorið 1963 voru sendar sjóskeljar frá tveim stöðum hér sunnan-
lands til dr. I. Olsson við Fysiska Institutionen í Uppsölum. í öðru
sýnishorninu var skel af kræklingi, sem safnað var í leirbakka við
Hellislioltslæk í Hrunamannahreppi. Sá staður er í 75 m hæð og
um 45 km frá sjó. Skeljunum safnaði Guðmundur Kjartansson árið
1941. Gerðar voru tvær aldursákvarðanir á sömu skelinni og gáfu
þær 9580 ± 140 (U-416) og 9800 ± 150 (U-417) eða meðalaldurinn
9690 ár.
í hinu sýnishorninu voru nokkrar samlokur af hörpudiski, sem