Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 56

Náttúrufræðingurinn - 1964, Side 56
150 NÁTT Ú RUFRÆÐ INGURINN Áskell Löve: Þróun lífsins II. Fjölbreytni lífsins. Þróun heimsins hófst með myndun frumeindanna, sem eru svo litlar, að engin mannleg stækkun getur gert þær sýnilegar, en samt varð úr þeim vetrarbraut vetrarbrautanna og allt það, sem við getum augun á fest. Þróun lífsins hófst, þegar stafróf lífsins amínósýrurnar tuttugu, heygðu sig undir stjóm stuðla erfðanna, DNA og lútanna þess fjögurra. Þótt fjölbreytni hins steinrunna heims sé mikil, er hún hverfandi í samanburði við fjölbreytni hins lifandi heims, því að úr hinum ósýnilega smáu fyrstu lifandi ver- um hefur þróunin skapað aragrúa einstaklinga, sem teljast til ara- grúa tegunda, enginn veit hve margra. Við vitum aftur á móti með vissu, að allar þessar tegundir geta rakið ættir sínar til lrinn- ar fyrstu sameiningar á DNA og amínósýrunum. Það er talið, að nú séu á jörðinni um 500.000 tegundir af jurtum og helmingi fleiri dýr, en frá upphafi Iiafa tegundirnar vafalaust skipt hundr- uðum milljóna. í norðlægum löndurn er fátt um tegundir og eins fátt um einstaklinga hverrar tegundar, en þar sem loftslag er hlýtt á sumrin og mátulega rakt, er gróðurinn fjölbreyttur og þéttur og dýralífið ótrúlega fjölþætt. Skordýrafræðingur í Manitóba sagði mér eitt sinn, að hann hafi gert athuganir á smádýrum á og í fer- metra af mold á kanadísku sléttunum og komizt að þeirri niður- stöðu, að tegundirnar skipti hundruðum og einstaklingarnir milljónum, og þó taldi hann ekki með smásæja einfrumunga. Og þannig hefur þetta verið lengur en við getum gert okkur í hugar- lund. Vegna þess hve lífið er flókið, er ekki auðvelt að sanna lögmál þróunarinnar með rökum stærðfræðinnar; það getum við aftur á móti hæglega gert, þegar í hlut eiga lögmál eðlisfræði og stjörnu- fræði, sem skýra þróun hins steinrunna heims. Þetta er orsök þess, að þar til fyrir skömmu trúðu jafnvel þeir, sem taldir voru lærðir,

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.