Náttúrufræðingurinn - 1964, Page 59
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
153
geta valdið brigðum. í stuttu máli sagt, við vitum, að brigðir geta
orðið vegna ýmissa áhrifa, þótt margt sé enn á huldu um orsakir
þeirra brigða, sent hafa i'leytt þróuninni stig aí: stigi.
Sem dæmi um brigðir er liægt að nefna ótal eiginleika jurta,
dýra og manna, en sumar þeirra eru augljósari en aðrar. Brún
augu og svart hár voru sennilega einkenni hinna fyrstu manna,
og enn er meginhluti mannkynsins brúneygur og svarthærður. En
blá augu og ljóst hár eru brigðir, sem virðast hafa komið fram frek-
ar seint meðal hvítra manna, og eins er hvítur hörundslitur nýrri
brigð en dökkur eða gulur. Alhvítar brigðir af dýrum, sem annars
eru dökk, konta öðru hverju fyrir og hafa efalaust bjargað mörgum
norrænum dýrum frá að verða úrvalinu að bráð að vetrarlagi. Lit-
lausir menn, eða hvítingjar, með rauð augu í stað blárra, eru ekki
sjaldgæft fyrirbrigði, en sá eiginleiki er vafalaust neikvæður og
til mikillar trafala fyrir þá, sem orðið liafa fyrir því óhappi að hljóta
hann í vöggugjöf. I bananaflugum, sem ræktaðar hafa verið á til-
raunastofum síðan urn 1910, hafa komið fram brigðir, sem snerta
alla hluta líkamans, og eins er liægt að rekja öll litbrigði skraut-
jurtanna lil brigða. Sumir telja vissar tegundir krabbameins vera
árangur brigða, sem viss efni hafa valdið, og snerta ef til vill mest
efnaskipti frumanna. Aftur á móti er stundum erfitt að skilja á
milli eiginlegra brigða og truflana á myndun vissra líffæra vegna
lyf ja eða annara efna, sem verkað hafa á fóstrið, líkt og hjá útlima-
lausu börnunum, sem nýlega urðu fyrir slysi vegna þess að mæður
þeirra höfðu tekið deyfilyfið thalidomíð, eins og öllum er í fersku
mirini.
Hver einstök brigð getur verið mikilvæg lyrir einstaklinginn,
senr ber hana, en þýðing hennar fyrir þróun íjölbreytninnar eykst
til mikilla muna við það, að hið nýja kon getur blandazt vegna þess
að kynæxlunin getur komið því í samband við önnur kon og aðrar
brigðir, sem ekki voru til í þeim einstaklingi, sem hún varð til í
í upphafi. Þetta gerist við víxlfrjóvgun. Samkvæmt erfðalögmálum
Mendels verða öll afkvæmi víxlunar milli einstaklinga, sem hafa
tvö ólík en samstæð eiginleikapör, eins í fyrsta ættlið, en í næsta
ættlið klofna eiginleikarnir aftur svo, að við fáum hlutfallið 9:3:3:1
milli fjögurra eiginleikasamstæðna, í stað hinna tveggja, sem ein-
kenndu foreldrana. Ef við gerum til dæmis tilraun með jurtir, sem