Náttúrufræðingurinn - 1964, Page 60
154
NÁTTÚRUFRÆÐI NGU RIN N
eru hvítblóma og lágvaxnar, og víxlfrjóvgum þær og rauðblóma
og hávaxinn stofn, verða öll afkvæmin í fyrsta ættliðnum sennilega
rauðblóma og hávaxin. í næsta ættlið koma aftur á móti ekki aðeins
fram rauðblóma og hávaxnar jurtir eða hvítblóma og lágvaxnar,
heldur líka rauðblóma og lágvaxnar og hvítblóma og hávaxnar. Eins
má blanda saman fleiri eiginleikum á svipaðan hátt, því að engin
takmörk eru fyrir því, hve mörgum eiginleikum má stokka saman
við víxlfrjóvgun í hverjum ættlið.
Þótt vissir geislar og efni valdi brigðum, er óhætt að fullyrða,
að eðlilegt umhverfi dýrsins eða jurtarinnar liafi engin áhrif á
sköpun brigðanna, og eins ræður umhverfið engu um það, hvernig
víxlfrjóvgun blandar gömlum og nýjum brigðum ættlið eftir ættlið.
En umhverfið ákveður örlög brigðanna. Um leið og ein brigð hefur
orðið til, er lnin vegin og dæmd af umhverfinu, og eins er það um-
hverfið, sem segir til um, hvort blöndun nýrra og gamalla brigða
er ill eða góð og til frambúðar fyrir einstaklinginn og ætt hans.
Þennan dómstól köllum við úrval náttúrunnar, og það úrval veld-
ur í rauninni mestu um, hvaða breytingar verða skammlífar og
hverjar hafa áhrif á framtíð tegundarinnar.
Það er ekki auðvelt að rannsaka lögmál hins náttúrlega úrvals,
af því að í tilraunastofum er ekki hægt að athuga nema hlutfalls-
lega fáa eiginleika í senn, og svo tekur það lengri tíma en manns-
ævin nær yfir að fylgjast með flestum þeim breytingum, sem skapa
afbrigði og deiltegundir En athuganir á steingerfingum hafa leitt í
ljós, að úrvalið breytir sumum lífverum hægar en öðrum, og stund-
um er eins og það verki misjafnlega mikið á ýmsum tímum. Sum
dýr virðast lítið sem ekkert hafa breytzt seinustu 350 milljón árin,
]íkt og sumar sæskeljar; og ameríska pokadýrið er eins í dag og
það var fyrir 100 milljónum árum. Aftur á móti hafa hestarnir
breytzt jafnt og þétt í 100 milljónir ára, og frumhestarnir eru löngu
síðan liðnir. Því hefur jafnvel verið haldið fram, að hestarnir myndu
hafa liðið undir lok án þessara breytinga, en þótt sú getgáta sé ef til
vill rétt, þegar hestarnir eiga í hlut, er hún eflaust ekki algild.
Sum risaskriðdýr miðaldanna breyttust engu hægar en hestarnir,
en gátu samt ekki flúið örlög sín og hurfu með öllu.
Þótt erfitt sé að rannsaka áhrif úrvalsins á breytingar í jafn stór-
um stíl og jarðsagan greinir frá, er hægt að atliuga áhrif umhverfis-