Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 66

Náttúrufræðingurinn - 1964, Blaðsíða 66
160 NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN Hið islenzka náttúrufrœðifélag 75 ára. Samkvæmt ákvörðun stjórnarinnar var 75 ára afmælis félagsins fimmtudaginn 16. júlí s.l. minnzt á tvennan hátt. Sunnudaginn næsta á undan, þ. 12. júlí, var farin afmælisferð um Hellisheiði og Grafning á Þingvöll. Skoðuð voru upptök Kristni- tökuhraunsins og gróður á Hellisheiði, 10 þúsund ára gamlar plöntu- leifar undir Þingvallahrauni við útfall Sogsins, Nesjahraun og upp- tök þess, Jórukleif og fleiri sighjallar við suðvestanvert Þingvalla- vatn, grös og gróður undir jórukleif og víðar í Grafningi. I Valhöll á Þingvöllum var sameiginleg kaffidrykkja. Undir borðum minntist formaður félagsins, rakti nokkuð tildrög að stofnun þess, sagði sögu þess og skýrði frá starfsemi þess í stuttu máli. Á heimleiðinni var staðnæmzt á eystri bakka Almannagjár og horft yfir vellina og hraunbrekkurnar austan þeirra, Vatnið og fjallahringinn umhverfis, að svo miklu leyti sem hægt var vegna takmarkaðs skyggnis. Ferðin var hin ánægjulegasta. Þátttakendur voru 42, þar af 3 heiðursgestir, heiðursfélagarnir Þorsteinn Kjarval, Ingimar Óskarsson og kona hans. Fyrir afmælið tók formaður, að tilhlutan stjórnarinnar, saman nokkur atriði um félagið, sögu þess og starfsemi og kom á framfæri við dagblöðin í Reykjavík, sem öll brugðust vel við og birtu mest- alla, sum alla, grein formanns á afmælisdaginn. Ríkisútvarpið léði félaginu einnig rúm í fréttaauka sínum á afmælisdaginn, þar sem formaður sagði frá félaginu og starfsferli Jsess. Á afmælisdaginn barst félaginu svohljóðandi heillaóskaskeyti frá Gylfa Þ. Gíslasyni, menntamálaráðherra: Hið íslenzka náttúrufræðifélag Hr. mag. scient. Eyþór Einarsson, formaður. í tilefni af 75 ára afmæli Hins íslenzka náttúrufræðifélags sendi ég félaginu og íslenzkum náttúrufræðingum hugheilar hamingju- óskir með þökkum fyrir ómetanlegt starf í þágu íslenzkrar nátt- úrufræði. Gylfi Þ. Gíslason. Hið íslenzka náttúrufræðifélag þakkar menntamálaráðherra kær- lega hamingjuóskirnar og viðurkenningarorðin. Eypór Einarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.