Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 13

Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 13
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN 171 grannur og ber smá gulhvít blóm, sem sitja þétt saman á stöngulendanum. Sýkigrasið blómgast í júní niðri á láglendi, en langt fram á sumar uppi í hlíðum. Það liggur oft laust í haga, þar senr sauðfé er beitt. Kindur virð- ast japla því út úr sér, ef það slæðist upp í þær, þeim fellur sennilega ekki lyktin eða bragðið. Nafnið sýkigras bendir til þess að það var talið eitrað, en ekki eru mér kunnar rannsóknir í því efni, og ekki veit ég til að fé hafi sýkst af smájurt þessari. Sýkigrasið vex víða í norðlægum löndum og uppi í Alpa- fjöllum. Hitt íslenzka villiblómið liljuættar — fer- laufasmárinn eða lásagrasið (Paris quadrifolia) er aftur á móti römm eiturjurt án nokkurs efa. Ferlaufasmári á ekkert skylt við „fjögra laufa túnsmára", sem trú er á sem óskajurt. Fer- laufasmári þrífst bezt í djúpum skugga og skjóli líkt og burknar og vex þess vegna í kjarri, urðum og hraungjótum. Fundinn á slíkum stöðum hér og hvar um landið, en samt ekki víða og heldur lítið í stað. Reyk- víkingar geta t. d. fundið hann í Hafnarfjarð- arhrauni, Árnesingar í skógarhlíðinni á Laug- arvatni o. s. frv. (sjá Flóru). Ferlaufasmári dregur nafn af fjórum, stórum, breiðum blöðum á stöngulendanum, önnur blöð hefur hann ekki. Blöðin geta stöku sinnum verið 3 eða 5, en það er undantekning. Þessi stóru blöð standa í kross, þau eru bog- strengjótt og gljáandi á neðra borði. Blómlaus er jurtin auðþekkt á þessum stóru blöðum. En blóm og aldin eru engu síður sérkennileg. Upp úr blaðhvirfingunni vex blómleggur, sem ber aðeins eitt blóm gulgrænt á að líta. Blómhlífarblöðin eru 8 alls, það er 4 -j- 4. Eru hin ytri 4 lensulaga, oddhvöss, græn, en hin innri 4 gulgræn og nær þráðmjó. Síðan þroskast aldinið og er sömuleiðis sérkennilegt, það er gráblátt eða dökkblátt allstórt ber, eitt á stilkendanum. Egglag frævunnar rauðleitt. Stöngull ferlaufasmára er oft 15—20 cm hár, en getur orðið 40—50 cm hár. Stöngullinn vex upp af lá- 1. mynd. Sýkigras.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.