Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
177
SUMMARY
The Bæli, an old volcano in Borgarfjördur
by Jón Jónsson
The State Electricity Authority,
' Geothermal Department, Reykjavik.
The Bæli or Arnarbæli is a small volcano in Nordurárdalur West-Iceland
on the main road Reykjavik—Akureyri and presumely of the glácial age. The
volcanic formation consists mainly of pillow-lava and pillow-breccia but to a
certain amount of tuffaceous material. At the south side it is superimposed by
till (see map). The material is basaltic with 50,2% plagioclase, 37,8% pyroxene,
7,5% olivine and 4,5% opaque material.
It is considered most probable tliat the eruption here has taken place sub-
glacially during the later half of the last glaciation.
Ingimar Óskarsson:
Enn bætist í hóp íslenzkra skeldýra
Tvær tegundir skeldýra, sem ekki var vitað um áður hér við
land, hafa komið fram á sjónarsviðið. Önnur þeirra er kuðungur,
er á vísindamáli nefnist Troschelia bernicensis (King) og telst til
ættarinnar Fasciolariidae, er hingað til hefur engan fulltrúa átt í
íslenzkum sjó. Á íslenzku kalla ég ætt jressa nataœtt. og kuðunginn
bylgjunata. Tegund þessari svipar mjög til hafkóngs og skyldra
tegunda, en aðskilur sig þó greinilega frá þeim öllum. Umræddur
kuðungur fékkst í botnvörpu á Síðugrunni í janúar 1962 á 170 m
dýpi. Hér var um lifandi eintak að ræða 9 cm langt, og er það
mjög algeng lengd á tegundinni fullvaxta.
Skel kuðungsins er nokkuð þykk, þakin gulbrúnu hýði. Hyrnan
er á lengd við munnann og meira odddregin en á hafkóngi. Vind-
ingar eru 9 að tölu með ávölum brúnum. Saumurinn fremur djúp-
ur. Munninn er í meðallagi víður með flárri útrönd, sem er greini-
lega buguð við rennuna, og er innri brún randarinnar með þétt-
stæðum hnúðtönnum. Halinn ofurlítið sveigður aftur. Yfirborð