Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 17

Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 175 1. mynd. Bæli i Norðurárdal. — Bœli, an old volcano in Nordurárdalur. stendur af bólstrum og óreglulegum steinum, mest smáum í grunn- rnassa af ösku og gosmöl. Innan um þetta kemur svo fyrir stuðlað berg, sem stundum minnir á ganga. Einnig má í þessari myndun finna rauðleitt gjall og móberg. Bergið í þessu er basalt með ein- staka allt að 1 cm stórum feldspatdílum, en mest er þó um feldspat- kristalla, sem eru aðeins 0,2—0,6 mm stórir. Með því að telja mínerala í einni þunnsneið fengust eftirfarandi tölur: Plagioklas 50,2%, pyroxen 37,8%, olivin 7,5% og ógagnsætt 4,5%. Það síðast- nefnda mest títanjárn. Bergið er ferskt á að sjá og ekki vottar fyrir bolufyllingum í því, og stingur það einnig að þessu leyti mjög í stúf við hið tertiera basalt báðum megin dalsins. Mér virðist ekki leika efi á, að Bæli sé gosmyndun og hún tiltölulega ung.1) Það er í fyrsta lagi ljóst, að hér er um að ræða myndun, sem er miklu yngri en basaltmyndunin báðum megin dalsins. í öðru lagi er ljóst, að dal- urinn hefur í stórum dráttum verið búinn að fá sitt núverandi útlit þegar hér gaus. Jökull síðustu ísaldar hefur skilið eftir urð ofan á gosmynduninni og sunnan við hana. Þetta má sjá bæði við ána 1) Eftir að greinarkorn þetta var skrifað, hefur mér borizt til eyrna, að Trausti Einarsson, prófessor, muni fyrstur manna hafa veitt þessari gosmyndttn eftirtekt, en þar sem ég hef ekki fundið í bókum, að Bælis væri getið sem eld- stöðva, virðist mér ekki ástæðulaust að gera það.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.