Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 14
172 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN réttum jarðstöngli, sem ligg- ur grunnt í moldinni. Er jarð- stöngullinn enn eitt einkenni til glöggvunar. — Blóm fer- laufasmára er hunangslaust og okkur þykir fremur óþægileg lykt af því, en hráætisflugur sækja í það og aðstoða e. t. v. við frævunina. Sjálffrævun einnig fær, þótt blómið sé að vissu marki fyrrmennt. — Fer- laufasmári er allur eitraður, en einkurn jarðstöngullinn og berið. Munið það. Hann var fyrrum notaður til lækninga, aðallega við hálskvillum. í þjóðtrú ýrnissa landa er fer- laufasmári talinn kraft- og galdrajurt; átti t. d. að hafa mátt til að verja menn og fén- að gegn göldrum. Sniðugir þjófar áttu að geta opnað lása með honum, sbr. nafnið lása- gras. Sennilega hefur ein- kennilegt útlit jurtarinnar og eitrið í henni valdið trúnni 2. mynd. Ferlaufasmári. á kraft hennar. Ferlaufasmári getur m. a. valdið ákafri upp- sölu ef ber eða safi úr jarðstöngli kemst í maga. Er því vara- samt að litla mikið við hann. — íslenzkar eiturjurtir eru sem betur fer fáar; varla aðrar en ferlaufasmári, mýrelfting og berserkjasveppur. Mýrelfting vex hvarvetna í mýrum og virðist bítast nokkuð af fé að skaðlausu. í mýrelftingu lifir stundum sníkjusveppur, sem getur gert hana eitraða, samkvæmt erlendum rannsóknum. Vitað er að illa verkað, myglað elftingarhey er vara- samt fóður. Hafa hestar drepist af því hér á landi að talið er. — Berserkjasveppur hefur fundizt í birkikjarri og skógi hér og hvar, t. d. á Vestfjörðum, í Suður-Þingeyjarsýslu og á Fljótsdalshéraði.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.