Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 28
186
NÁTT Ú RUFRÆÐINGURINN
Flestar nytjajurtir mannkynsins eru fjöllitna, og hið ræktaða
hveiti, sem hefur 42 litþræði og er sexhtna, hefur orðið til í tveirn
stigum við samruna þriggja villtra grasa og tvöföldun litþráða-
fjölda bastarðanna. Seinna stigið, sem skapaði brauðhveitið sjálft,
varð fyrir botni Miðjarðarhafsins fyrir um 6—7000 árurn, og því
hefur verið haldið fram með töluverðum rökum, að það hafi ver-
ið upphafið að menningu hins livíta manns.
Vegna þess að erfitt er að nota aðferðir erfðafræðinnar til að rann-
saka skyldleika ættkvísla og ætta, vitum við enn sem komið er mun
minna um þróun þeirra. Það virðist þó liggja í augum uppi, að
þessar æðri tröppur þróunarstigans hljóti að hafa þróazt á svipaðan
liátt og fjölbreytnin sjálf, þótt útrýming millistiga og hvarf teg-
unda og annarra flokka valdi eflaust mestu um hve sérstæðar ætt-
kvíslir og ættir geta verið. En það er sögulegt vandamál og varla
erfðafræðilegt, svo að við getum látið það liggja á milli hluta fyrst
um sinn.
Fjölbreytni lífsins þróast aðallega á grundvelli brigða, blöndun
þeirra og úrvals innan tegundanna, og það úrval veldur mestu
um framtíð tegundarinnar og eins þeirra ættkvísla og ætta, sem
síðar verða til. Sá æxlunarhemill, sem skapar tegundirnar sjálfar,
verður til við gagngerðar breytingar á litþráðunum, annaðhvort við
hægfara þróun, sem veldur truflunum á röð konanna og pörun
litþráðanna, eða við skyndilegar breytingar á litþráðafjöldanum.
Þegar ný tegund hefur orðið til, heldur fjölbreytni hennar áfram
að aukast með brigðum, blöndun, og úrvali, því að það er sú rás,
sem hófst um leið og hið fyrsta líf varð til og lýkur ekki fyrr en
lífið hður undir lok.
Því eru engin takmörk sett, hve fjölbreytnin getur orðið mikil
á öllum stigum lífsins, alveg eins og engin takmörk eru fyrir því,
hve margar bækur má prenta á hverju máli, eða hve margar mál-
lýzkur og tungumál geta orðið til á jarðríki. Þróunin er endalaus
og ævarandi af því að stafróf lífsins og stuðlar erfðanna hafa veitt
henni sama frelsi og skáldunum til að yrkja óð lífsins frá eilífð til
eilífðar.
IV. Lokaorð.
Þróun lífsins hófst fyrir þúsund milljónum ára, þegar stafróf
lífsins, amínósýrurnar tuttugu, beygðu sig undir stjórn stuðla erfð-