Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 37

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 37
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 195 ísinn fleytt þeim hingað til íslands? Mikla heppni þarf til að hafís- flutt fræ berist upp í mold, þar sem það getur gróið. En margt skeður vegna tilviljana. Hver skyldi vera lausn gátunnar? Hefur davíðslykillinn hjarað síðustu ísöld á Hámundarstaðabökkum? Hef- ur hann slæðzt þangað með varningi eða hefur hafísinn flutt hann milli landa? Fyrrum sigldu líka íslendingar milli íslands og Græn- lands! Ingólfur Davíðsson. Starir fundnar á nýjum stöðum 1964. 1. Dúnhulstrastör (Carex pilulifera). Sá hana hér og hvar í snögg- lendum grasbrekkum á Gilsárstekk, Gilsá og Tóarseli í Norður- dal Breiðdals. Sömuleiðis í utanverðum Hrolleifsdal í Skaga- firði. 2. Flóastör (Carex limosa). Víða á Gilsá og Gilsárstekk í Breiðdal, m. a. í flóabletti allhátt í Gilsárstekkshlíð. 3. Grástör (Carex flacca) mjög þroskaleg, vex í kjarrjaðri á hálf- röku halli innan og ofan við gamlan knattspyrnuvöll í norður- hlíð Fagradals inn af Reyðarfirði. Skammt þaðan sá ég villilín og nokkrar hvítblómgaðar blá- klukkur. Þyrnirósinni á Kollaleiru við Reyðarfjörð er e. t. v. hætta búin af ræktunarframkvæmdum. Þarf að friða vaxtarstaði íslenzku rósanna. Ingólfur Daviðsson. Slæðingar að Hólum og við Skógaskóla: Heim að Hólum í Hjaltadal hafa sennilega fyrr og síðar slæðzt ýmsar jurtategundir. Sumarið 1964 sá ég þessar við lauslega at- hugun: Akurarfi, arfanæpa, arfamustarður, bókhveiti, baldursbrá útlend, freyjubrá, gulbrá, hélunjóli, rauðsmári, alsikusmári, bygg, hveiti, hafrar, axhnoðapuntur, rýgresi, háliðagras, vallarfoxgras og ennfremur eldri slæðingar þ. e. hásveifgras, húsapuntur, græðisúra og skriðsóley. Alls 21 tegund. Þótt aðeins séu liðin 15 ár síðan Skógaskóli undir Eyjafjöllum var settur á stofn, hafa þegar borizt þangað 14 teg. slæðinga með grasfræi o. fl. varningi. Þær eru þessar: Gulbrá, græðisúra, hnoða- fræhyrna, krossfífill, kúmen, rauðsmári, skriðsóley, þistill, húsa- puntur, bygg, axhnoðapuntur, rýgresi, háliðagras og vallarfoxgras.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.